Innlent

Mótmælin við Austurvöll - 3. dagur

Stefán Árni Pálsson skrifar
Nú hafa rúmlega 32 þúsund manns skrifað undir á síðunni thjod.is .
Nú hafa rúmlega 32 þúsund manns skrifað undir á síðunni thjod.is . visir/valli
Þriðju mótmælin á Austurvelli eru hafin en mótmælt er fyrirhugaðri afturköllun aðildarviðræðna við Evrópusambandið.

Beina útsendingu frá mótmælunum má sjá í vefmyndavél á heimasíðu Mílu.

Nú hafa rúmlega 32 þúsund manns skrifað undir á síðunni thjod.is þar sem skorað er Alþingi að leggja til hliðar tillögu til þingsályktunar um að draga til baka umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu og boða til þjóðaratkvæðagreiðslu.

Við biðjum þá sem eru staddir á Austurvelli og vilja miðla myndum eða athugasemdum til Vísis í gegnum Instagram eða Twitter að merkja færslurnar með #visir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×