Innlent

Spurningum nemenda svarað í F.Á.

Samúel Karl Ólason skrifar
Vísir/Stefán
Nemendur Fjölbrautaskólans við Ármúla voru boðaðir til nemendafundar í dag vegna umræðu sem hefur verið í gangi um kjaramál kennara og mögulegt verkfall. Á fundinum fóru Steinn Jóhannsson, skólameistari og Ólafur H. Sigurjónsson, aðstoðarskólameistari, yfir stöðu mála og svöruðu spurningum nemenda.

„Nemendur fjölmenntu á fundinn og voru margir áhyggjufullir um framhald mála en vonandi kemur ekki til þess að kennarar FÁ neyðist til að beita verkfallsvopninu,“ segir á síðu FÁ.

Á meðfylgjandi myndbandi má sjá Ólaf svara spurningum nokkurra nemenda.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×