Óttast ekki refsiaðgerðir af hálfu ESB Jón Júlíus Karlsson skrifar 13. febrúar 2014 20:26
Sjávarútvegsráðherra óttast ekki refsiaðgerðir af hálfu Evrópusambandsins vegna makríldeilunnar. Ráðherra áformar að úthluta makrílkvóta innan tíðar. Makrílviðræður eru í hnút og engin lausn í sjónmáli. Þetta kom fram í kvöldfréttum Stöðvar 2 í kvöld. „Ég óttast í sjálfu sér ekki refsiaðgerðir vegna þess að þær byggja á ofveiði sem er alls ekki af okkar hálfu,“ segir Sigurður Ingi Jóhannsson sjávarútvegsráðherra. „Það sem við þurfum að velta fyrir okkur í stóra samhenginu og óttumst er að ef að allir fara út með sínar kröfur og grunnurinn sé í kringum milljón tonn, þá er hætta á því að það skapist ofveiði í þessum stofni.“Hjólaleiðir á Íslandi Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands voru veitt í 19. sinn við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í dag. Að þessu sinni var það verkefnið Hjólaleiðir á Íslandi sem hlaut verðlaunin en það fól í sér að koma íslenskum hjólaleiðum á kortið í Evrópu. Hjólaleiðir á Íslandi hlaut Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands sem veitt voru á Bessastöðum í dag. Þetta er í 19. sinn sem þessi verðlaun eru veitt. „Við erum að gera framlengingu á hjólreiðaneti sem er nú þegar til staðar. Sú leið sem við kynnum í okkar verkefni er framlenging á þessu neti hingað til lands,“ segir Gísli Rafn Guðmundsson, annar vinningshafa. „Þetta er svona tvíþættur ávinningur, bæði fyrir ferðaþjónustuna og okkur íbúa landsins,“ segir Eva Dís Þórðardóttir.Framúrskarandi fyrirtæki Samherji, Já og Eignamiðluin voru í dag valin framúrskarandi fyrirtæki ársins 2013. Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra veitti verðlaunin á Hilton Nordica í dag. Valin eru framúrskarandi fyrirtæki í þremur stærðarflokkum sem hljóta þessi árlegu verðlaun. Samherji var efst í hópi stórra fyrirtækja en Eignamiðlun var efst á lista lítilla fyrirtækja. 462 fyrirtæki eru á lista Framúrskarandi fyrirtækja í ár sem er um 1,4 prósent af þeim 33.000 fyrirtækjum sem skráð eru á Íslandi.
Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira