TM sýknað af kröfu Lárusar Welding og tveggja annarra Glitnismanna Elimar Hauksson skrifar 14. febrúar 2014 07:00 Hæstiréttur sýknaði TM af kröfum Lárusar, Jóns og Þorsteins.
Sjö manna Hæstiréttur sýknaði í gær Tryggingamiðstöðina af kröfum Lárusar Welding, fyrrum forstjóra Glitnis, Jóns Sigurðssonar og Þorsteins M. Jónssonar, sem báðir voru stjórnarmenn í Glitni, um að viðurkennt yrði að ákveðinn skilmáli stjórnendatryggingar sem Glitnir keypti af TM næði yfir kröfur Glitnis banka gegn þeim auk málskostnaðar vegna málaferla bankans gegn þeim árið 2010. Þremenningarnir byggðu á því að ákvæði samningsins fæli í sér að TM greiði allan kostnað sem þeir hafi þegar orðið fyrir og muni verða fyrir vegna tiltekinna málshöfðana á hendur þeim hér á landi og í Bandaríkjunum. Héraðsdómur hafði fallist á kröfur þremenninganna og viðurkennt að ákveðinn skilmáli í samningi milli TM og Glitnis um 72 mánaða tilkynningarfrest stæði því ekki í vegi að kröfur þeirra gegn TM næðu fram að ganga og stjórnendatryggingin væri því virk. Á þetta féllst Hæstiréttur hins vegar ekki og vísaði til þess að Glitnir hefði á árinu 2009 keypt aðra stjórnendatryggingu hjá öðru vátryggingafélagi í stað hinnar upphaflegu hjá TM frá árinu 2008. Væri því samkvæmt skýru og afdráttarlausu orðalagi samningsákvæðisins ekki fullnægt því skilyrði að ekki hefði í stað upphaflegu tryggingarinnar verið keypt önnur trygging sem veitti stjórnendum og yfirmönnum ábyrgðartryggingu og var TM því sýknað. Málið í gær var ekki eina mál Lárusar Welding í Hæstarétti en hann var í gær sýknaður af ákæru sérstaks saksóknara um umboðssvik eins og Vísir greindi frá í gær.
Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Innlent Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Erlent Fleiri fréttir Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Sjá meira