Innlent

Ökumaður og farþegi hlupu undan lögreglu

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
Farþeginn reyndi að fela sig í verslun í nágrenninu en ökumaðurinn hljóp aftur fyrir verslunarhúsnæðið.
Farþeginn reyndi að fela sig í verslun í nágrenninu en ökumaðurinn hljóp aftur fyrir verslunarhúsnæðið. vísir/pjetur
Ökumaður og farþegi í bifreið tóku til fótanna þegar lögreglan á Suðurnesjum hugðist kanna með ökuréttindi og ástand hins fyrrnefnda í vikunni. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu.

Farþeginn, karlmaður um þrítugt, reyndi að fela sig í verslun í nágrenninu og ökumaðurinn, tæplega þrítug kona, hljóp aftur fyrir verslunarhúsnæðið. Í ljós kom að konan hafði verið svipt ökuréttindum ævilangt, auk þess sem hún viðurkenndi reglubundna neyslu á kannabisefnum, amfetamíni og kókaíni. Það staðfestu sýnatökur á lögreglustöð.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×