Leiða verkefni sem gæti valdið straumhvörfum í evrópskum sjávarútvegi Jón Júlíus Karlsson skrifar 14. febrúar 2014 20:00
Ísland er í forystuhlutverki í þróun fjölstofna fiskveiðistjórnunarkerfis sem gæti gjörbylt sjávarútvegi í Evrópu. Íslendingar fá tæplega 300 milljóna króna styrk frá Evrópusambandinu til að vinna að verkefninu. Styrkurinn er meðal stærstu verkefnastyrkja sem veittir eru í Evrópu á þessu sviði.Matís og Háskóli Íslands gegna forystuhlutverki í nýju umfangsmiklu fjölþjóðaverkefni sem hefur hlotið 275 milljóna króna styrk frá sjöundu rannsóknaráætlun Evrópusambandsins til næstu fjögurra ára. Verkefnið kallast MareFrame og hlaut 14 stig af 15 mögulegum í mati fagnefndarinnar sem veitti styrkinn. „Við erum að fara að þróa fjölstofna fiskveiðistjórnunarkerfi. Það er nýtt að því leyti að innleitt er í kerfið vistvæna, sjálfbæra og félagslega hagræna þætti,“ segir Anna Kristín Daníelsdóttir, sviðstjóri hjá Matís.Ofveiði á fiskistofnum í Evrópu Þrír af hverjum fjórum fiskistofnum Evrópusambandsins eru ofveiddir í dag og því mikil þörf fyrir nýjar leiðir í fiskveiðistjórnun. „Evrópusambandið hefur verið að vinna að endurskoðun á sínu fiskveiðistjórnunarkerfi. Útkoman úr þessum verkefnum mun að hluta til endurskoða þeirra kerfi,“ segir Anna Kristín.Íslendingar í fararbroddi Einn þeirra sérfræðinga sem taka þátt í verkefninu er Andre Punt, prófessor við Háskólann í Washington. Hann hefur sérhæft sig í rannsóknum á fiskveiðistjórnunarkerfum og telur eðlilegt að Íslendingar stýri verkefninu enda í fararbroddi í fiskveiðistjórnun í heiminum. „Það sem við höfum séð til þessa lofar góðu,“ segir Punt. „Þetta verkefni mun skila afar nýstárlegum vísindaniðurstöðum og við sjáum fyrir okkur samstarf milli landa sem mun gagnast við fiskveiðistjórnun um langa framtíð.Stefnið þið að því að gjörbylta fiskveiðikerfinu í Evrópu? „Já, við stefnum að því að gera það og erum bjartsýn,“ segir Anna Kristín.
Mest lesið Bílstjóri ráðherra lagði ríkið Innlent Kalli Snæ biðst afsökunar Innlent Þingmenn hneykslast á mótmælum við hátíðarathöfnina Innlent Dæmdur fyrir líkamsárás á meðan hann er grunaður um morð Innlent Húseigandinn Jón dansari segist koma af fjöllum Innlent Tilfinning hægri manna um að fréttir RÚV séu óháðar fer dvínandi Innlent Féll í hálku í sundi og fær bætur Innlent Ótrúlegar myndir af krefjandi lendingu án nefhjóls Innlent Gengur hringinn til styrktar vannærðum börnum Innlent Gátu loks yfirheyrt konuna Innlent Fleiri fréttir Kalli Snæ biðst afsökunar Bílstjóri ráðherra lagði ríkið Tilfinning hægri manna um að fréttir RÚV séu óháðar fer dvínandi Gengur hringinn til styrktar vannærðum börnum Þingmenn hneykslast á mótmælum við hátíðarathöfnina Ein bílferð jafngildi tuttugu þúsund mótorhjólaferðum Dæmdur fyrir líkamsárás á meðan hann er grunaður um morð Féll í hálku í sundi og fær bætur Hátt spennustig, ruslið sem ekki er hægt að endurvinna og kvennavaka Ótrúlegar myndir af krefjandi lendingu án nefhjóls Írskir lögreglumenn til Íslands vegna máls Jóns Þrastar Bréfið rímar ekki við fullyrðingar Kalla Snæ Hyggjast ekki greina frá nöfnum hinna látnu Skúringabúnaðurinn laus af segulómtækinu en ástand þess óljóst Húseigandinn Jón dansari segist koma af fjöllum Gátu loks yfirheyrt konuna Fækka hefðbundnum kennslustundum um þriðjung „Þetta er verra hjá strákunum heldur en hjá stelpunum“ Eigandi Bjargar í áfalli en vonast til að bjarga fötum Hólavallagarður friðlýstur Gerir ráð fyrir að ljúka þingstörfum fyrir mánaðamót Ekki talið að andlátið hafi borið að með saknæmum hætti Tæpur helmingur ætlar að flytja aftur til Grindavíkur Kvikmyndaskólinn lifir og skólagjöld verða hóflegri „Mér varð um og ó þegar þeir voru að brjótast inn í húsið“ Kvenréttindadagur: „Baráttan er ekki búin“ Vill banna nikótínvörur með bragði og gera umbúðirnar ljótar Leita ekki Sigríðar í dag Um helmingur Grindvíkinga segist líklega ætla að snúa aftur Sigríður tekur við formennsku af Silju Báru Sjá meira