Segir slæmt ef fjölga eigi seðlabankastjórum Þorbjörn Þórðarson skrifar 16. febrúar 2014 21:28
Lögum um Seðlabanka Íslands verður breytt og stendur sú vinna yfir í fjármálaráðuneytinu. Þetta segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra. Hann útilokar ekki að seðlabankastjórum verði fjölgað Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra upplýsti um þetta í viðtali við Gísla Martein Baldursson í Sunnudagsmorgni á Rúv. „Það hefur legið fyrir nokkuð lengi að það þyrfti að breyta lögunum um Seðlabankann. Þetta birtist í þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar. Nýjasta uppfærslan af henni er frá miðjum janúar.“ „Hvað varðar fjölda seðlabankastjóra þá geri ég ráð fyrir því að það sé eitt af því sem verið er að skoða. Það eru ákveðin rök sem hníga að því að það sé æskilegt að hafa fleiri en einn. Önnur rök hníga að því að það sé gott að hafa einn. Þetta eru menn að vega og meta.“ Undir lok viðtalsins lýsti forsætisráðherra áliti sínu á frammistöðu Gísla Marteins í þættinum. Árni Páll Árnason formaður Samfylkingarinnar, stærsta stjórnarandstöðuflokksins, segir það stíl forsætisráðherra að gefa ýmislegt til kynna og bera ekkert til baka. Árni Páll segir slæmt ef fjölga eigi seðlabankastjórum til að koma pólitískum bandamönnum að. Það verður á endanum ákvörðun fagráðherra málaflokksins að leggja frumvarpið fram, þ.e fjármála- og efnahagsráðherra. Í þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar á vef stjórnarráðsins er ekki getið frumvarpsins um Seðlabankann þrátt fyrir ummæli forsætisráðherra en það er hins vegar í uppfærðri þingmálaskrá sem ekki hefur verið birt. Hægt er að horfa á viðtalið við Árna Pál í heild sinni hér að ofan.
Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Innlent Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Erlent Fleiri fréttir Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Sjá meira