Fjölmörg tilefni til að breyta Seðlabankanum Heimir Már Pétursson skrifar 18. febrúar 2014 20:15
Fjármálaráðherra segir fjölmörg tilefni vera til endurskoðunar á lögum um Seðlabanka Íslands og útilokar ekki breytingar á bankanum. Hins vegar hafi engar ákvarðanir verið teknar um fjölgun bankastjóra. Vilji stjórnvöld losna við Má Guðmundsson úr Seðlabankanum verða þau að tilkynna honum það fyrir næst komandi fimmtudag að staða hans verði auglýst laus til umsóknar. Að öðrum kosti á hann rétt á endurskipun í embætti, óski hann eftir því.Stendur til að auglýsa þessa stöðu? „Ég get ekki tjáð mig um það nákvæmlega hvernig á því máli verður haldið. En ef til einhvers slíks kæmimyndum við skoða það í samhengi við það að við ætluðum að hrinda af stað einhverri vinnu við að endurskoða seðlabankalögin. Það eru hlutir sem þurfa að eiga sér einhvern eðlilegan aðdraganda og vandaðan undirbúning að mínu áliti,“ segir Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra.Núverandi seðlabankastjóri hefur lýst því yfir opinberlega að hann hafi áhuga á að sinna starfinu áfram. Verður hann seðlabankastjóri næsta haust? „Við skulum sjá hver niðurstaðan verður. Ég ætla ekki að svara því hér og nú,“ segir fjármálaráðherra. Bjarni segir engar meiriháttar breytingar á lögum um Seðlabankann hafa verið í undirbúningi. Hins vegar sé á dagskrá frumvarp sem lúti að uppgjörsreglum Seðlabankans og ríkissjóðs. „Ég ætla hins vegar ekki að útiloka það að við viljum efna til endurskoðunar á lögum um Seðlabankann. Það eru fjölmörg tilefni til að gera það. En hverning verður nákvæmlega að því staðið hefur ekki verið endanlega ákveðið,“ segir Bjarni Benediktsson.
Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Erlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Fleiri fréttir Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Sjá meira