54.000 krónur á skátamót Stefán Ó. Jónsson skrifar 19. febrúar 2014 12:19 Skátar á landsmóti á Úlfljótsvatni VISIR/ÁRMANN
Skátar sem ætla sér á Landsmót skáta í sumar þurfa að reiða fram 54.000 fyrir innritunargjaldi á mótið. Þetta kemur fram í frétt Akureyri vikublaðs um málið. Landsmót skáta er haldið á víxl á Hömrum á Akureyri og við Úlfljótsvatn en í ár verður það í Eyjafirði dagana 20.-27. júlí. Skipuleggjendur búast við um 2000 þátttakendum á mótið og því má áætla að tekjur af innritunargjöldum skátakrakkana verði rúmlega 100 milljónir króna. Þegar 10% systkinaafsláttur er tekinn inn í myndina er ljóst að foreldrar tveggja skáta þurfa að greiða 102.600 krónur í innritunargjöld á mótið. Frestur til að greiða gjaldið var framlengdur fram í miðjan mars en upphaflega var krafist greiðslu innritunargjaldanna fyrir 1. febrúar. Jón Ingvar Bragason, viðburðastjóri BÍS, segir í samtali við vikublaðið að mörg skátafélög hafi staðið fyrir fjáröflunum til að standa straum af kostnaði við för á skátamótið. Í samtali við Vísi segir skátaforingi á höfuðborgarsvæðinu að fáir kippi sér upp við gjaldið. „Enda er það svo að í því felst fullt fæði í viku, dagskrá og afnot af svæðinu að Hömrum“ segir foringinn en bendir á að skátafélög eru misdugleg við að hlaupa undir bagga með foreldrum sem senda börn sín á mótið. „Í félaginu mínu hafa flestir skátarnir nú þegar safnað sér fyrir mótsgjaldinu og rúmlega það,“ bætti foringinn við hreykinn.
Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira