Enski boltinn

Källström stóðst læknisskoðun hjá Arsenal en kemur Klose líka?

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Kim Källström.
Kim Källström. Vísir/NordicPhotos/Getty
Sænski miðjumaðurinn Kim Källström mun klára tímabilið hjá enska liðinu Arsenal sem fær hann á láni frá Spartak Moskvu í Rússlandi. Independent segir að Arsenal sé líka að reyna að fá Þjóðverjarnn Miroslav Klose frá Lazio.

Hinn 31 árs gamli Kim Källström stóðs læknisskoðun hjá Arsenal í dag og mun hjálpa Arsene Wenger að fylla í skarð Aaron Ramsey sem verður frá í sex vikur vegna meiðsla.

Källström lék í sex ár hjá franska félaginu Lyon við mjög góðan orðstír og á að baki 108 landsleiki fyrir Svíþjóð.

Wenger er á höttunum eftir framherja áður en glugginn lokar í kvöld og eru bæði hinn 35 ára gamli Miroslav Klose hjá Lazio og Mirko Vucinic hjá Juventus orðaðir við Arsenal í frétt á vefsíðu Independent.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×