Erlent

Viðræður í Úkraínu skiluðu litlu

Klitschko er svartsýnn á lausn á málum.
Klitschko er svartsýnn á lausn á málum. Vísir/afp
Ekkert kom út úr fundi leiðtoga mótmælenda í Úkraínu með forseta landsins sem fram fór í gærkvöldi. Vitali Klitschko, einn af forsprökkum stjórnarandstöðunnar sagði að forsetinn Yanukovych hefði ekki rétt fram sáttahönd og óttast hann frekari blóðsúthellingar í landinu.

Annar stjórnarandstæðingur sem sat fundinn fullyrðir þó að forsetinn hafi lofað að sleppa mótmælendum úr haldi, en fjölmargir hafa verið teknir höndum síðustu vikurnar í höfuðborginni Kænugarði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×