Erlent

Neyðarlögum hótað í Úkraínu

Ekkert lát er á róstrum í Úkraínu.
Ekkert lát er á róstrum í Úkraínu. Vísir/AFP
Dómsmálaráðherra Úkraínu varaði mótmælendur við því að neyðarlögum verði komið á í landinu fari þeir ekki úr ráðuneytinu, en hópur fólks ruddist þar inn í gærkvöldi og hefur bygginguna  nú á valdi sínu.

Fólkið hefur hlaðið götuvígi umhverfis húsið og neitar að fara. Átökin í Úkraínu hafa nú breiðst út til annarra borga en í byrjun voru þau aðeins í höfuðborginni Kænugarði. Nú er svo komið að mótmælendur hafa tekið á sitt vald opinberar byggingar í tíu borgum víðsvegar um landið.

Um helgina hafnaði leiðtogi mótmæenda, Areseniy Yatsenyuk, tilboði Yanukovich forseta að hann verði forsætisráðherra og sagði kosningar einu leiðina til að lægja öldurnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×