Flúði fram af svölum af 4. hæð Kristjana Arnarsdóttir skrifar 19. janúar 2014 11:15
Töluverður erill var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Um klukkan hálf níu í gærkvöldi var karlmaður handtekinn við veitingahús í miðbæ Reykjavíkur en hann hafði ráðist að starfsmanni staðarins. Um tveimur klukkustundum áður hafði sami maður verið handtekinn fyrir ónæði, þá á öðru veitingahúsi. Maðurinn var vistaður í fangageymslu lögreglu þar til ástand hans lagaðist. Þá handtók lögreglan karlmann í Hafnarfirði um klukkan 21 en hann var grunaður um vörslu og sölu fíkniefna og var hald lagt á efni sem maðurinn framvísaði. Rétt eftir klukkan miðnætti var tilkynnt um eld í fjölbýlishúsi í Kópavogi en eldur logaði í fatahrúgu í geymslu. Töluverður reykur var á sameign en eldurinn var fljótt slökktur. Ekki er vitað um eldsupptök. Lögreglan hafði einnig afskipti af nokkrum ökumönnum, ýmist vegna gruns um ölvun eða akstur undir áhrifum fíkniefna. Þegar klukkan var gengin ellefu mínútur í tvö var lögregla kölluð að fjölbýlishúsi í Austurborginni en þar var grunur um heimilisofbeldi. Svo reyndist ekki vera en á vettvangi fann lögreglan fíkniefnaplöntur og voru tveir menn handteknir og vistaðir í fangageymslu. Annar aðilinn reyndi að flýja vettvang með því að fara fram af svölum á 4. hæð en lögregla náði honum skömmu síðar. Þá var tilkynnt um innbrot á snyrtistofu í Kópavogi um korter yfir tvö en innbrotsþjófar höfðu spennt upp glugga og farið þannig inn á snyrtistofuna. Ekki er vitað hverju var stolið. Um tuttugu mínútur í þrjú var tilkynnt um líkamsárás í Breiðholti en þar hafði maður verið sleginn í höfuðið með verkfæri og hlaut hann skurð. Árásaraðilinn var vistaður í fangageymslu lögreglu. Lögreglan fékk fjölda tilkynningar um partýhávaða og fleira tengt ölvun.
Mest lesið Lögreglumaður á sjúkrahúsi eftir alvarlega árás á Goslokahátíð Innlent „Við ætlum að upplifa stóra drauminn hans Kristians Helga” Innlent Keyptu ónýtt hús og fá ekki áheyrn Innlent „Þetta virðast vera einu gjöldin sem ekki má snerta“ Innlent Skipstjóri handtekinn í Reykjavíkurhöfn Innlent Piltur reyndi að stöðva árás föður sem ógnaði móðurinni með hníf Innlent Nýjasta útspil Ísraela á Gasa minni á „lokalausn“ nasistanna Innlent Ákvörðun dómsmálaráðherra gríðarleg vonbrigði Innlent Kolfelldu tillögu minnihlutans: „Það er meirihlutinn sem stýrir dagskránni“ Innlent Lögreglan lýsir eftir Hebu Ýr Innlent Fleiri fréttir Skorið á bönd palestínska og úkraínska fánans Konan er komin í leitirnar Keyptu ónýtt hús og fá ekki áheyrn Alls 246 ökumenn sektaðir og átta sviptir vegna hraðaksturs Eldri borgarar skemmtu sér í múmínkastalanum Menn á sextugs- og sjötugsaldri grunaðir um stórfellt fíkniefnabrot Nýjasta útspil Ísraela á Gasa minni á „lokalausn“ nasistanna Handviss um að Sjálfstæðisflokkurinn fái yfir þrjátíu prósent Kolfelldu tillögu minnihlutans: „Það er meirihlutinn sem stýrir dagskránni“ „Þetta virðast vera einu gjöldin sem ekki má snerta“ Skráningargjöld, fylgistap og gettó á Gasa Bæjarráð Voga vill gera ráð fyrir flugvelli í Hvassahrauni Leggur til þjóðaratkvæðagreiðslu um bókun 35 Piltur reyndi að stöðva árás föður sem ógnaði móðurinni með hníf Flugvél Play lenti í hagléli og þurfti að snúa við Lögreglumaður á sjúkrahúsi eftir alvarlega árás á Goslokahátíð Óskar viðbragða ráðherra við löngum afgreiðslutíma Lögregla lýsir eftir heilabilaðri konu á Akureyri „Við ætlum að upplifa stóra drauminn hans Kristians Helga” Vilja taka fjármálaáætlun til umræðu Einu verslun Þingeyringa lokað Aðsóknarmet slegið í lögreglunám Skipstjóri handtekinn í Reykjavíkurhöfn Ákvörðun dómsmálaráðherra gríðarleg vonbrigði Lögreglan lýsir eftir Hebu Ýr Öll tölfræði um málþófið á einum stað: Íslandsmet á næsta sólarhring „Þetta er bara hálfkák og ekkert annað“ Skiltið hluti af stærra vandamáli sem dragi úr lífsgæðum Spyr hvort berja megi blaðamenn í ljósi sýknudómsins Enn að jafna sig eftir stunguárás: „Þeir eru miklu yngri en réðu samt ekkert við 43 ára mann“ Sjá meira