Var byrlað nauðgunarlyf umkringd fjölskyldunni Kristjana Arnarsdóttir skrifar 1. janúar 2014 23:18 Helena Ósk Ívarsdóttir deilir óskemmtilegri lífsreynslu sinni á Facebook. „
Maður er greinilega aldrei óhultur, sama hvaða fólki maður er með,“ segir Helena Ósk Ívarsdóttir, sem byrlað var nauðgunarlyf á skemmtistað í Keflavík á laugardaginn. Helena deildi lífsreynslu sinni á Facebook-síðu sinni í gær og vonast til að þetta verði öðrum víti til varnaðar. Helena og fjölskylda hennar ákváðu að skella sér út á lífið saman og lá leiðin á skemmtistaðin Duus. Þar sat fjölskyldan lungann úr kvöldinu. „Klukkan hálf fjögur ákvað ég svo að kíkja á annan stað í Keflavík og bað litlu frænku mína um að skutla mér. Henni fannst ég samt orðin verulega skrýtin og vildi skutla mér heim. Ég þvertók fyrir það og var nánast búin að stökkva út úr bílnum á ferð.“ Helena segir að hún hafi látið öllum illum látum um kvöldið og hún hafi meira að segja lent í útistöðum við dyravörð. Á þeim tímapunkti hafi vinir hennar ákveðið að fara með hana upp á læknavakt. Þegar þangað var komið var Helena farin að sjá ofsjónir og var með alls konar ranghugmyndir. „Þá hringdu vinir mínir á lögregluna. Pabbi þurfti svo að koma og ná í mig á lögreglustöðina og halda mér niðri þangað til ég loksins sofnaði.“ Helena er þakklát fyrir að ekki fór verr. Facebook-færslu hennar má lesa hér að neðan. Á laugardaginn ákáðum við fjölskyldan að fara skemmta okkur og við skelltum okkur öll saman á Duus á Striksball, við sátum öll saman við eitt borð nánast allan tíman sem ég man eftir að hafa verið þarna inni. Eitthvern vegin tókst samt eitthverri virkilega aumkunarverðri sál að setja nauðgunarlyf í drykkinn minn. Áhrif þess virkuðu þannig á mig að ég sljógaðist fyrst niður, gat ekki stigið almennilega í fæturnar og varð alveg máttlaus. Fljótlega fékk ég miklar aukaverkanir sem komu fram í gríðarlegum ranghugmyndum, ofsjónum, ofsareiði, pirring, eirðaleysi og geðtruflunum. Ég man ekkert eftir því sem gerðist á þessum tíma en það tók u.þ.b. 24 tíma að losa efnið úr líkamanum, ég þurfti róandi og mikla hvíld til að ná mér. - vill taka það fram að ég var látin blása á lögreglustöðinni um nóttina og mældist 0.3% í mér, þannig með réttu hefði ég geta keyrt heim. Annað, samviskan nagar mig því ég veit ég sagði virkilega ljóta hluti við fólk og var vond við marga sem áttu það ekki skilið, ef ég kom illa fram við eitthvern sem er að lesa þetta þá bið ég þig innilegrar afsökunar - þetta var aldrei ég að tala. Ég þakka hins vegar fyrir að ekki fór verr - sem hefði auðveldlega geta gerst ef ekki hefði verið fyrir allt yndislega fólkið sem hjálpaði mér. Ég hef sjaldan séð það jafn vel hvað ég á sterka og magnaða foreldra, kærasta, ættingja og vini sem gerðu allt fyrir mig. Ég ákvað að deila þessu í dag í von um að vera öðrum víti til varnaðar. Það tekur örskamma stund að smeyja þessu eitri í drykkinn þinn þrátt fyrir að þú sért umkringd fjölskyldu og vinum á rólegum stað. Passið drykkina ykkar í kvöld og passið hvort annað! Því miður er samfélagið orðið þannig í dag að við getum aldrei verið örugg. Farið varlega inní nýja árið elsku vinir og njótið kvöldsins með þeim sem ykkur þykir vænt um x
Mest lesið Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Innlent Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Innlent „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Innlent Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Innlent Þyrlan lenti við Hörpu Innlent „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Innlent Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Innlent Tortímir gervigreindin mannkyninu? Innlent Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Innlent Buxnalaus Lalli olli glundroða Innlent Fleiri fréttir Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Fluttur til aðhlynningar eftir umferðarslys Tortímir gervigreindin mannkyninu? „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Sjaldgæfur gestur í Eyjum Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Hver ákvað að Guðmundur Ingi ætti að hætta? Sjá meira