Að gefnu tilefni Guðrún Nordal skrifar 31. janúar 2014 06:00 Ég set niður þessi orð að gefnu tilefni. Í fámenninu hér á landi telur fólk sig vita stjórnmálaskoðanir annarra og jafnvel afstöðu til einstakra mála, án þess að hafa nokkurn tíma hitt viðkomandi. Við erum öll dregin í dilka, jafnvel þó að við höfum ekkert ákveðið mark í eyra. Ég er óflokksbundin og hef aldrei komið nálægt starfi stjórnmálaflokks, en ég neyti að sjálfsögðu kosningarréttar míns. Þetta er mitt val, en þar með er ekki sagt að ég sé skoðanalaus eða áhugalaus um þjóðfélagsmál eða að ég geri lítið úr hæfni þeirra sem helga sig stjórnmálum. Þvert á móti. Ég hef alltaf haft brennandi skoðanir á málefnum líðandi stundar, á stjórnmálum og ekki síður þeim flóknu áskorunum sem blasa við samfélagi okkar í dag. En ég hef einfaldlega hvorki skaplyndi né falla skoðanir mínar í svo einhlítan farveg að ég geti bundið trúss mitt við stefnu eins stjórnmálaflokks fremur en annars. Síðustu ár hafa aukinheldur sýnt að það eru fleiri og jafnvel áhrifaríkari leiðir til að hafa áhrif á samfélag sitt en að vera í flokkspólitík, og því hef ég fagnað því þegar mér hefur verið treyst fyrir stefnumótandi verkefnum í samfélaginu.Lykilatriði Ég gegni tveimur trúnaðarstörfum nú um stundir, annars vegar er ég formaður vísindanefndar Vísinda- og tækniráðs, skipuð af Katrínu Jakobsdóttur, og hins vegar er ég í stjórn Ríkisútvarpsins, tilnefnd af Illuga Gunnarssyni. Ég hef verið beðin að taka að mér þessi mikilvægu störf af ráðherrum í tveimur ólíkum flokkum vegna starfsreynslu minnar og menntunar, og ég hef gengið til þeirra af trúnaði gagnvart þeim sem ég starfa fyrir, sem eru vitaskuld skattgreiðendur. Umræðan á Alþingi um skipun í stjórn Ríkisútvarpsins fælir fólk eins og mig frá því að gefa kost á sér í störf þar sem flokkslegur stimpill virðist skipta meginmáli, þó að verkefnin snúist fyrst og fremst um faglega vinnu og breitt samstarf. Það er lykilatriði að Alþingi og stjórnvöld almennt hugi ekki aðeins að nákvæmum prósentureikningi svokallaðs minni- og meirihluta heldur leitist markvisst við að laða breiðan hóp fagmanna að trúnaðarstörfum í samfélaginu. Það var sannarlega mikil gæfa að allir flokkar áttu fulltrúa í stjórn Ríkisútvarpsins á síðustu mánuðum, þegar miklir erfiðleikar blöstu við stofnuninni. Stjórnarmenn stóðu þá þétt saman og störfuðu ekki á forsendum stjórnarmeirihluta eða minnihluta, heldur með hag Ríkisútvarpsins að leiðarljósi. Sú eindrægni og fagmennska kom vel í ljós þegar stjórnin tók samhljóða ákvörðun um ráðningu nýs útvarpsstjóra. Meðal annars af þeirri ástæðu er það dapurlegt að Pétur Gunnarsson rithöfundur skuli ekki lengur eiga sæti í stjórn Ríkisútvarpsins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Þjóðarmorð? Finnur Th. Eiríksson Skoðun Þeir seldu áhættuna sem tækifæri — og sendu þjóðinni reikninginn Baldur Pétursson Skoðun Traust á lögmönnum er ekki einkamál lögmanna Vilbert Gústafsson Skoðun Heimilislæknar og reglugerðardrög Alma D. Möller Skoðun Einstaklingurinn og fullveldið Signý Sigurðardóttir Skoðun Sterkari skólar fyrir öll börn Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Skilvirk núna en ekki ef við göngum í ESB Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Þegar kaffið rennur upp á við í Undralandi íslenskrar orðræðu Sigurður Sigurðsson Skoðun Upplýsingar eru ekki ógn, þær eru forsenda Halldór Jörgen Olesen Skoðun Nýsköpunin sem hverfur inn í skýið Bogi Ragnarsson Skoðun Skoðun Skoðun Nýsköpunin sem hverfur inn í skýið Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Þegar kaffið rennur upp á við í Undralandi íslenskrar orðræðu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Þeir seldu áhættuna sem tækifæri — og sendu þjóðinni reikninginn Baldur Pétursson skrifar Skoðun Traust á lögmönnum er ekki einkamál lögmanna Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Upplýsingar eru ekki ógn, þær eru forsenda Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Heimilislæknar og reglugerðardrög Alma D. Möller skrifar Skoðun Einstaklingurinn og fullveldið Signý Sigurðardóttir skrifar Skoðun Skilvirk núna en ekki ef við göngum í ESB Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sterkari skólar fyrir öll börn Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Ég hef líka trú á Ögmundi Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun „Áður en við segjum já eða nei“ Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Þjóðarmorð? Finnur Th. Eiríksson skrifar Skoðun Breyttar áherslur í borgarskipulagi Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Hernaðarbrölt Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Það sem við gefum áfram Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Ríkið má ekki skorast undan Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Gjaldtaka hins opinbera þarf að vera fyrirsjáanleg Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin 250 ára: frelsi, stjórnarskrá og lærdómur fyrir Ísland Júlíus Valsson skrifar Skoðun Getum við gert enn betur? Já í ágúst Elvar Örn Arason skrifar Skoðun Húsnæðiskaupmáttur Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Hef trú á Arnari Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Börn eiga ekki að bíða meðan kerfið rífst Guðmundur Ármann skrifar Skoðun Júlí - mánuður fötlunarstolts Freyja Haraldsdóttir ,Jana Birta Björnsdóttir skrifar Skoðun Níutíu ár af sameiginlegu öryggi Ragnar Þór Ingólfsson skrifar Skoðun Var þetta sýndarsamráð? Sigurborg Kr. Hannesdóttir skrifar Skoðun Hvað vitum við í ágúst? Staðreyndir og möguleikar Íslands Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Töpum við fullveldinu ef við göngum í ESB? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Samningurinn sem allir hafa lesið skrifar Skoðun UT-mál Reykjavíkurborgar Haukur Arnþórsson skrifar Skoðun Er Ísland tilbúið fyrir dánaraðstoð? Ingrid Kuhlman skrifar Sjá meira