Græðgi, er það einkenni ráðandi hópa á Íslandi? Hallgrímur Hróðmarsson skrifar 27. febrúar 2014 06:00 Samningar standa nú yfir milli launþega og vinnuveitenda þeirra. Pótintátar efnahagsmála og atvinnurekenda ræða gjarnan um að hækkun launa í prósentum megi ekki fara upp fyrir ákveðin mörk ef halda á verðbólgunni í skefjum. Réttilega benda þeir á að ef launin hækka yfir ákveðin mörk þá er líklegt að vöruverð og þjónustugjöld hækki í kjölfarið. Og síðan étur verðbólgan hækkun launanna. Ósjálfrátt veltir maður því fyrir sér í þessu sambandi hvort almennir launþegar eigi einir að koma okkur út úr kreppunni. Ekki voru það þeir sem komu okkur út á þann kalda klaka. Er ekki réttlátt að aðrir þjóðfélagsþegnar axli sína ábyrgð? Óskar Garibaldason (1908–1984), formaður Verkalýðsfélagsins Vöku á Siglufirði, hafði ákveðið markmið að leiðarljósi varðandi laun sín. Hann þáði sömu laun fyrir formennskuna og þau sem hann samdi um fyrir verkafólkið. Forkólfar verkalýðsfélaga dagsins í dag mættu vel taka Óskar sér til fyrirmyndar. Kannski myndi það efla þá í að semja um mannsæmandi laun fyrir umbjóðendur sína. Um síðustu aldamót tókst framhaldsskólakennurum að semja um laun sem voru í takt við aðra hópa í Bandalagi háskólamanna með sömu menntun. Árið 2006 fór aftur að draga í sundur milli hópanna. Og nú 13 árum síðar er munurinn á hópunum aftur orðinn verulegur eða sem nemur um 17%. Það er ekkert réttlæti í þessu. Kennarar eru fjölmenn stétt en það réttlætir ekki að þeir eigi að sitja eftir. Réttlátast væri að hóparnir fengju svipaðar hækkanir þó að það hefði í för með sér að aðrir félagar í BHM fengju minni hækkanir.Skammtað sér sjálfir Lítum á málið frá öðru sjónarhorni. Hvaða réttlæti er í því að embættismenn á vegum ríkisins séu á margföldum launum miðað við almenna félaga í BHM eða annarra stéttarfélaga? Oft er nefnt í þessu sambandi að það tryggi að hæfasta fólkið sækist eftir störfum hjá ríkinu. Margt af þessu fólki fær hækkanir sem Kjararáð ákveður. Hækkanir til þeirra eru verulega meiri því mun meira er tekið mið af launum við sambærileg störf á almennum vinnumarkaði. Þeir lægra settu sitja svo eftir með minni hækkanir. Annan hóp mætti einnig nefna en það eru þingmenn og ráðherrar. Í gegnum tíðina hafa þeir ýmist fengið hækkanir út frá ákvörðunum Kjararáðs eða þeir hafa af óskammfeilni skammtað sér launin sjálfir. Árið 1962 voru laun þingmanna miðuð við laun menntaskólakennara. Nú eru launin u.þ.b. tvöfalt hærri en laun framhaldsskólakennara og laun ráðherra u.þ.b. þrefalt hærri. Eiga þessir toppar ekki einnig að fá laun í samræmi við það sem hæfir þegnum landsins við að vinna okkur út úr erfiðleikunum? Aftur heyrir maður hvíslað – enginn gæfi kost á sér til þingsetu ef hann fengi ekki sambærileg laun og á almennum vinnumarkaði. Þetta er bara bull því við þurfum einmitt á því að halda að þingmenn og ráðherrar séu það miklir hugsjónamenn að þeir séu tilbúnir að axla sömu ábyrgð og almenningur í landinu. Áður en kreppan skall á okkur voru bankamenn farnir að skenkja sér ofurlaun. Það sama gilti um marga forstjóra á almennum vinnumarkaði. Hækkun lægstu launa á þessum stöðum voru alls ekki í samræmi við þetta háttalag. Svo kemur kreppan og við búumst við því að þessir toppar dragi réttar ályktanir um ástandið. En svo er ekki. Við heyrum núna að topparnir í bönkum og í almennum fyrirtækjum séu aftur farnir að taka sér ofurlaun. Græðgin situr við völd. Ef hægt er að borga þessi laun þá væri réttast að almenningur fengi að njóta þess. Bankar og fyrirtæki eru að rétta úr kútnum. Því ekki að lækka vexti og lækka verð á vöru og þjónustu? Það myndi gagnast almenningi jafnvel betur en launahækkanir. Ef fólk er ekki tilbúið að axla sínar byrðar þá er ekkert annað ráð en að tukta þá til sem stjórnast af græðginni einni saman. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Að þröngva lífsskoðun upp á annað fólk Sævar Þór Jónsson Skoðun Áform um að eyðileggja Ísland! Jóna Imsland Skoðun Hver erum við? Hvert stefnum við? Arnar Þór Jónsson Skoðun Kjarnorkuákvæði? Dagur B. Eggertsson Skoðun Í skugga virkjana, þegar náttúran fær ekki að tala: Hvammsvirkjun lamin í gegn með góðu og illu Gunnar Þór Jónsson,Svanborg R. Jónsdóttir Skoðun Fjármálalæsi í fríinu – fjárfesting sem endist lengur en sólbrúnkan! Íris Björk Hreinsdóttir Skoðun Samstarf er lykill að framtíðinni Magnús Þór Jónsson Skoðun Hvað hefur áunnist á 140 dögum? Heiða Björg Hilmisdóttir,Dóra Björt Guðjónsdóttir,Sanna Magdalena Mörtudóttir,Helga Þórðardóttir,Líf Magneudóttir Skoðun Hugtakið valdarán gengisfellt Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Mega blaðamenn ljúga? Páll Steingrímsson Skoðun Skoðun Skoðun Dæmir sig sjálft Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Mega blaðamenn ljúga? Páll Steingrímsson skrifar Skoðun Ákall um nægjusemi í heimi neyslubrjálæðis Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Hvað hefur áunnist á 140 dögum? Heiða Björg Hilmisdóttir,Dóra Björt Guðjónsdóttir,Sanna Magdalena Mörtudóttir,Helga Þórðardóttir,Líf Magneudóttir skrifar Skoðun Samstarf er lykill að framtíðinni Magnús Þór Jónsson skrifar Skoðun Kjarnorkuákvæði? Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hver erum við? Hvert stefnum við? Arnar Þór Jónsson skrifar Skoðun Í skugga virkjana, þegar náttúran fær ekki að tala: Hvammsvirkjun lamin í gegn með góðu og illu Gunnar Þór Jónsson,Svanborg R. Jónsdóttir skrifar Skoðun Fjármálalæsi í fríinu – fjárfesting sem endist lengur en sólbrúnkan! Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Hugtakið valdarán gengisfellt Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Ábyrgðin er þeirra Vilhjálmur Árnason skrifar Skoðun Dæmt um form, ekki efni Hörður Arnarson skrifar Skoðun Að þröngva lífsskoðun upp á annað fólk Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Um fundarstjórn forseta Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Hjálpartæki – fyrir hverja? Júlíana Magnúsdóttir skrifar Skoðun Menntasjóður námsmanna og ECTS einingar Matthías Arngrímsson skrifar Skoðun Áform um að eyðileggja Ísland! Jóna Imsland skrifar Skoðun Í 1.129 daga hefur Alþingi hunsað jaðarsettasta hóp samfélagsins Grímur Atlason skrifar Skoðun Tekur ný ríkisstjórn af skarið? Árni Einarsson skrifar Skoðun Strandveiðar í gíslingu – Alþingi sveltir sjávarbyggðir Árni Björn Kristbjörnsson skrifar Skoðun Rölt að botninum Smári McCarthy skrifar Skoðun Að fortíð skal hyggja þegar framtíð skal byggja Einar G. Harðarson skrifar Skoðun Málþóf spillingar og græðgi á Alþingi Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Lýðskrum Skattfylkingarinnar Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Krabbamein – reddast þetta? Halla Þorvaldsdóttir skrifar Skoðun Valdið yfir sjávarútvegsmálunum Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Lummuleg áform heilbrigðisráðherra Ragnar Sigurður Kristjánsson skrifar Skoðun Hver á að fá súrefnisgrímuna fyrst? Davíð Bergmann. skrifar Skoðun Baráttan um kjör eldra fólks Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Menntamál íslenskra grunnskólabarna hafa verið til umfjöllunar – sem er vel. Miklu verra er tilefnið Karen Rúnarsdóttir skrifar Sjá meira
Í skugga virkjana, þegar náttúran fær ekki að tala: Hvammsvirkjun lamin í gegn með góðu og illu Gunnar Þór Jónsson,Svanborg R. Jónsdóttir Skoðun
Hvað hefur áunnist á 140 dögum? Heiða Björg Hilmisdóttir,Dóra Björt Guðjónsdóttir,Sanna Magdalena Mörtudóttir,Helga Þórðardóttir,Líf Magneudóttir Skoðun
Skoðun Hvað hefur áunnist á 140 dögum? Heiða Björg Hilmisdóttir,Dóra Björt Guðjónsdóttir,Sanna Magdalena Mörtudóttir,Helga Þórðardóttir,Líf Magneudóttir skrifar
Skoðun Í skugga virkjana, þegar náttúran fær ekki að tala: Hvammsvirkjun lamin í gegn með góðu og illu Gunnar Þór Jónsson,Svanborg R. Jónsdóttir skrifar
Skoðun Fjármálalæsi í fríinu – fjárfesting sem endist lengur en sólbrúnkan! Íris Björk Hreinsdóttir skrifar
Skoðun Menntamál íslenskra grunnskólabarna hafa verið til umfjöllunar – sem er vel. Miklu verra er tilefnið Karen Rúnarsdóttir skrifar
Í skugga virkjana, þegar náttúran fær ekki að tala: Hvammsvirkjun lamin í gegn með góðu og illu Gunnar Þór Jónsson,Svanborg R. Jónsdóttir Skoðun
Hvað hefur áunnist á 140 dögum? Heiða Björg Hilmisdóttir,Dóra Björt Guðjónsdóttir,Sanna Magdalena Mörtudóttir,Helga Þórðardóttir,Líf Magneudóttir Skoðun