Hús Pistoriusar sett á sölu

Pistorius skaut Reevu Steenkamp til bana í húsinu þann 14. febrúar í fyrra og segir hann að um óviljaverk hafi verið að ræða. Hann hafi haldið að hún væri innbrotsþjófur þegar hann skaut fjórum skotum í gegnum baðherbergishurð í svefnherbergi sínu um miðja nótt. Steenkamp, sem var 29 ára gömul, var inni á baðinu og hæfðu þrjú skot hana með þeim afleiðingum að hún lést.
Nú er ljóst að réttarhöldin yfir Pistoriusi muni taka lengri tíma en þær þrjár vikur sem lagt var upp með í upphafi. Lögfræðikostnaðurinn eykst því í hlutfalli við það og því verður húsið selt.
Pistorius segist ekki geta hugsað sér að búa í húsinu og hann hefur ekki stigið fæti þar inn síðan hina örlagaríku nótt fyrir rúmu ári. Fasteignasalinn Ansie Louw segir í samtali við AFP-fréttastofuna að húsið verði selt á lokuðu uppboði, en fimm milljón rand eru lágmarksverð fyrir húsið. Það jafngildir um 52 milljónum króna, en kostnaður Pistoriusar vegna málsins jafngildir um einni milljón króna á dag.
Tengdar fréttir

Fréttaskýring: Kaldrifjað morð eða hræðilegt slys?
Dómari í borginni Pretoria í Suður-Afríku hefur ákveðið að taka mál spretthlauparans Oscar Pistorius fyrir á morgun, eftir að búið er að taka blóðsýni úr honum. Til stóð að morðákæra gegn honum yrði tekin fyrir hjá dómstólum síðdegis í dag.

Sá Pistorius bera blóðugan líkamann niður tröppurnar
Segir vitnið að Pistorius hafi verið í miklu uppnámi og að þau hafi saman reynt að stöðva blæðinguna úr líkama hennar en án árangurs.

Sterar á heimili Pistorius
Sterar fundust á heimili spretthlauparans Oscar Pistorius, sem grunaður er um morð á kærustu sinni, Reeva Steenkamp.

Neitar að hafa myrt kærustuna
Oscar Pistorius neitar því að hafa myrt Steenkamp kærustu sína af yfirlögðu ráði og mótmælir ákæru þess efnis harðlega í yfirlýsingu sem fjölskylda hans sendi frá sér eftir hádegi í dag.

Pistorius ræður til sín réttarmeinafræðinga
Hópur réttarvísindamanna mun gefa sérfræðiálit sitt í fyrirhuguðum réttarhöldum.

Nike segir tímabundið upp samningi við Pistorius
Íþróttavöruframleiðandinn Nike hefur sagt tímabundið upp samningi sínum við frjálsíþróttakappann Oscar Pistorius. Suður-Afríkumaðurinn er sakaður um að hafa myrt kærustu sína að yfirlögðu ráði.

Pistorius dvelur á heimili frænda síns
Lífið á tryggingu er hafið hjá suður-afríska spretthlauparanum Óskari Pistoríus sem í gær var leystur úr haldi gegn tæplega fjórtán milljóna króna tryggingafé. Forsíður blaðanna fóru hamförum í morgun og sitt sýnist hverjum um framvindu mála.

Nágranni heyrði skelfingaröskur Reevu
Suður-afríski íþróttamaðurinn Oscar Pistorius sagðist fyrir dómi í gær vera saklaus af ásökunum saksóknara um að hafa myrt Reevu Steenkamp, kærustu sína, á Valentínusardaginn í fyrra.

Færði hluti úr stað á heimili Pistoriusar
Verjendur spretthlauparans Oscars Pistorius, sem ákærður er fyrir morð, segja skipulagsleysi hafa ríkt við rannsókn málsins.

Hávaðarifrildi og öskur heyrðust frá íbúðinni
Mál suður-afríska spretthlauparans Oscar Pistorius heldur áfram, en í dag halda réttarhöldin um hvort sleppa eigi honum lausum gegn tryggingagjaldi áfram.

Össur hættir að styrkja Pistorius
Stoðtækjaframleiðandinn Össur hf. hefur ákveðið að endurnýja ekki samning sinn við suðurafríska spretthlauparann Oscar Pistorius, en réttað er yfir honum þessa dagana í Suður-Afríku vegna gruns um morð.

Hver er Oscar Pistorius?
Suður-afríski spretthlauparinn Oscar Pistorius er grunaður um að hafa myrt kærustu sína af yfirlögðu ráði að morgni 14. febrúar. En hver er þessi margumtalaði maður?

Á yfir höfði sér lífstíðarfangelsi
Suðurafríski spretthlauparinn Oscar Pistorius var formlega ákærður í dag fyrir morð.

Blóðug krikketkylfa á heimili Pistoriusar
Lögreglan í Suður Afríku fann blóðuga krikketkylfu á heimili hlauparans Oscars Pistoriusar. Pistorius hefur verið í haldi lögreglu frá því á fimmtudag, grunaður um að hafa skotið 29 ára gamla unnustu sína, Reevu Steenkamp, til bana.

Ljósmyndir af líki Steenkamp vöktu óhug í réttarsalnum
Spretthlauparinn Oscar Pistorius ældi enn á ný á níunda degi réttarhaldanna.

Suður-afríska íþróttahetjan Pistorius skaut kærustu sína til bana
Suður-afríska íþróttahetjan Oscar Pistorius er í haldi lögreglunnar þar í landi en hann er talinn hafa skotið kærustu sína til bana í nótt.