Mynd sem fjallar um kjöt Ugla Egilsdóttir skrifar 4. mars 2014 10:30 Mynd Heimis var sýnd á Northern Wave Film Festival, sem fór fram á Grundarfirði. MYND/ÚR EINKASAFNI „
Maður verður að horfa á myndina til að botna eitthvað í henni, en hún fjallar samt klárlega aðallega um kjöt,“ segir Heimir Gestur Valdimarsson sem fékk verðlaun fyrir örmynd ársins á hátíðinni Örvarpanum fyrir myndina Kjöt. Úrslitin voru kynnt á hátíð í Bíó Paradís á laugardagskvöld, en Örvarpið er samstarfsverkefni Ríkisútvarpsins og Bíó Paradísar. „Mér skilst að örmyndaformið gangi aðallega út á mínútulöng myndbönd. Margar myndirnar í þessari keppni voru mínúta að lengd, en þær máttu vera allt að fimm mínútur. Mín var þrjár mínútur,“ segir Heimir.Úr myndinni Kjöti.MYND/ Heimir Gestur ValdimarssonMyndin var útskriftarverkefni Heimis í skólanum FAMU í Tékklandi. „Ég lærði kvikmyndatöku þar í eitt ár, en ég hafði þó eitthvað verið að grufla í kvikmyndagerð áður. Þessi mynd var skólaverkefni. Kennari í skólanum setti okkur fyrir að búa til mynd um drauma. Markmiðið hjá mér var að búa til vídeó sem mér þótti líta vel út og væri súrrealískt. Það er smá saga í myndinni, en þetta myndræna í myndinni er mikilvægara en sagan,“ segir Heimir. Auk þess að gera örmyndir hefur Heimir tekið upp tónlistarmyndbönd. „Meðal annars fyrir hljómsveitina Grísalappalísu, fyrir lag sem heitir Í Mjóddinni, og fyrir hljómsveitina Oyama,“ segir Heimir. Einnig voru veitt áhorfendaverðlaun á Örvarpinu, sem féllu í skaut Einari Baldvini Arasyni fyrir myndina Echos – Who Knew. Erlendur Sveinsson fékk síðan sérstök verðlaun frá dómnefnd fyrir myndina Breathe.
Mest lesið Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Lífið „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Lífið Hvað veistu um... gönguleiðir? Lífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Lífið Eva Rún og Blær hljóta Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur Menning Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Lífið Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Lífið Leiðir skilja hjá leikhúspari Lífið Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Lífið Hroðvirknislegt hljóð og klisjur setja strik í reikninginn Gagnrýni Fleiri fréttir Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Hélt allsherjar skilnaðarpartý: „Ég er frjáls“ Lést eftir mislukkaða typpastækkun í Taílandi „Brúðkaup aldarinnar“ hjá Önnu Fríðu og Sverri Stjörnulífið: Undir hárlengingum og bótoxi leynist íslenskur karlmaður Eitt allra krúttlegasta mót ársins Ólíkt hafast þeir að forsetarnir fyrrverandi Einn mánuður án áfengis breytti öllu Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Sjá meira