Vill mynda nakið kvenfólk Ólöf Skaftadóttir skrifar 6. mars 2014 08:00 Mirko Kraeft Vísir/Mirko Kraeft „
Ég er að leita að íslenskum konum á aldrinum tuttugu til þrjátíu ára til að sitja fyrir, naktar,“ segir þýski ljósmyndarinn Mirko Kraeft, sem er hingað kominn til lands frá Berlín, til þess að mynda lokaverkefni sitt við Berliner Technische Kunsthochschule, sem er listaháskóli þar í borg. Mirko kom fyrst hingað til lands í september í fyrra. „Fyrir utan þessa ótrúlega fallegu birtu, fannst mér óvanalegt landslagið einstaklega heillandi,“ segir hann og bætir við: „Litirnir og formin í náttúrunni virtust renna saman í eitt, sem var eitthvað sem ég hafði aldrei áður séð, hvorki fyrr né síðar. Bylgjótt yfirlagið er eins og einhver sjónbrella – eins og það séu lík sem liggi undir jörðinni,“ segir hann og bætir við að honum hafi þótt mikið til íslenskra kvenna koma.Vísir/Mirko Kraeft„Íslenskar konur eru eins og íslenska náttúran; ljós húð sem skín á, hár sem flæðir og augun eru eins og ísjakar í Atlantshafinu. Ég var virkilega djúpt snortinn eftir þessa heimsókn mína,“ segir hann og segist hafa ákveðið þá og þegar að láta lokaverkefni sitt við listaháskólann fjalla um þetta. Mig langar til þess að heimfæra þessa kvenlegu fagurfræði upp á íslensku náttúruna – mig langar til þess að rannsaka þetta betur.“ Mirko keypti sína fyrstu myndavél fyrir fimm árum. „Ég varð ástfanginn af ljósmyndun. Ég hætti í skólanum, þar sem ég var að læra verkfræði, til þess að einbeita mér að ljósmynduninni. Nú hef ég mestan áhuga á portrettlist og hygg á frama í ljósmyndun,“ segir Mirko að lokum – en áhugasamar fyrirsætur geta haft samband á mirkokraeft@googlemail.com.
Mest lesið Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum Lífið „Auðveldara hér að vera bara eins og maður er“ Tíska og hönnun Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Lífið Stjúpur og fjólur það heitasta Lífið „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Lífið Fjörður og mynd um áhrif innrásar Rússa verðlaunuð í Cannes Menning „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Lífið Vill helst brenna myndir frá unglingsárunum Tíska og hönnun „Við erum bara tvö eftir“ Lífið Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Lífið Fleiri fréttir Stjúpur og fjólur það heitasta Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Grafinn í sand í sólarhring Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð „Við erum bara tvö eftir“ Afi snýr aftur á litla sviði Þjóðleikhússins Allir fárveikir eftir tónlistarmyndband Helgi Björns og Ragga Gísla ætla að trylla lýðinn með tali og tónum „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Tilkynntu óvart dauða konungsins „Ógeðslega flókinn tími í lífi fólks“ Ætla valdasjúkir tækifærissinnar að steypa okkur í glötun? Hvað veistu um... flugvelli? Vignir Vatnar opnar sig um sjálfsvígshugsanir Lygilega erfið þrautabraut Nemendur í Seljaskóla graffa 56 metra listaverk við skólann Fyrrverandi þingmaður selur í Laugardalnum Eyþór og Ástríður eignuðust lítinn Arnalds Þurfti hjálp við að anda og lítið var um svör Kvikmyndagerðarmenn framtíðarinnar í fíling Frumsamin kórverk í heimabruggi bílskúrsbands Ari Edwald og Ingibjörg keyptu súkkulaðihöllina Naglbíts-barn á leiðinni Sólveig Anna og Marta María léku á als oddi og Óli tottaði vindil Ívar Halldórs var týndi sonur Jóhanns G. Jóhannssonar Flúði land vegna fátæktar og atvinnuleysis Aron Can og Erna keyptu „óvart“ hús Sjá meira