Maðurinn í öndunarvél og honum haldið sofandi Jakob Bjarnar skrifar 16. júní 2014 08:29 Maðurinn er nú á gjörgæsludeild þar sem hann er í öndunarvél og honum haldið sofandi.
Maður liggur nú á gjörgæsludeild eftir alvarlega árás á Hvammstanga á laugardagskvöld. Maðurinn hlaut meðal annars alvarlega áverka á höfði. Karlmaður á fertugsaldri er í lífshættu eftir að á hann var ráðist á Hvammstanga laugardagskvöld. Hann var fluttur með sjúkrabíl til Reykjavíkur og tilkynnti læknir á bráðdeild Landspítalans um málið til lögreglu. Maðurinn er á gjörgæslu og er honum haldið sofandi. Hann er nú í öndunarvél og er ástand hans óbreytt að sögn vakthafandi læknis. Áverkar hans eru alvarlegir en þeir eru meðal annars á höfði. Ekki fengust upplýsingar um horfur. Vísir greindi frá málinu um helgina en þar kemur meðal annars fram að árásarmennirnir hafi verið á öllum aldri, sá yngsti er um tvítugt en sá elsti á sextugsaldri en lögreglan á Akureyri, sem fer með rannsókn málsins vildi ekki gefa upp nánari upplýsingar að svo stöddu, en staðfesti þó að fjórir karlmenn lægju undir grun. Talið er að mennirnir hafi verið í gleðskap ásamt fimmta manni í íbúð eins árásarmannanna. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu á Akureyri nú í morgun eru mennirnir í haldi og farið hefur verið fram á gæsluvarðhaldsúrskurð meðan á rannsókn málsins stendur. Þeir bíða nú úrskurðar dómara og vænta hans einhvern tíma í dag.
Mest lesið Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Innlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Innlent Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Innlent Fleiri fréttir Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Sjá meira