Viðskipti innlent

Kaupa sjö hæðir í Borgartúni 25

Stefán Árni Pálsson skrifar
mynd af Borgartúni 25.
mynd af Borgartúni 25.
FÍ fasteignafélag hefur keypt 1-7. hæð í Borgartúni 25 en félagið hefur skrifað undir kaupsamning við Sjávarsíðu ehf. um kaupin.

Um er að ræða alla fasteignina að undanskilinni 8. hæð hússins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá FÌ fasteignafélaginu.

„Það er einstaklega ánægjulegt fyrir félagið að ganga frá kaupum á fasteigninni við Borgartún 25. Húsið er afar vel staðsett og hentugt til skrifstofureksturs en Borgartúnið hefur dregið til sín mörg öflug fyrirtæki á undanförnum árum,“ segir Örn V. Kjartansson, framkvæmdastjóri FÍ fasteignafélags.

„Fjölmörg sterk fyrirtæki eru leigutakar í Borgartúni 25 meðal annara Straumur fjárfestingarbanki, Vörður tryggingarfélag, Almenni lífeyrissjóðurinn, Microsoft ofl.“

FÍ fasteignafélagið er rekið af félagi í meirihlutaeigu MP banka. Félagið sérhæfir sig í rekstri fasteignasafna og nýtir sérþekkingu og tengsl á fasteignamarkaði til að afla fjárfestingartækifæra á atvinnuhúsnæðismarkaðnum.

Félagið sér um þjónustu við leigutaka og stýrir rekstri og viðhaldi fasteigna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×