Hundurinn Lupo hefur ekki varið miklum tíma í konungshöllinni að undanförnu.
Lupo er hundur Kate Middleton. Hún fékk hvolpinn í snemmbúna jólagjöf frá foreldrum sínum árið 2011. Lupo er af tegundinni cocker-spaniel.
Lupo hefur ílengst í borgarferð í höfuðstaðnum. Bróðir Kate sást fara í göngutúr með Lupo í nágrenni við vinnu sína í London.
Talið er að hundurinn hafi verið sendur í frí vegna fæðingar George, sonar Williams Bretaprins og Kate. Enginn í konungshöllinni hefur þó staðfest þann orðróm.
Lupo var ekki á gestalista drottningarinnar á jóladag á sveitasetrinu í Sandringham.
Lupo óvelkominn í konungshöllina
Ugla Egilsdóttir skrifar

Mest lesið

Fegin að hafa valið flottasta kjólinn fyrir óvænta trúlofun
Tíska og hönnun


Bakið er hætt að hefna sín
Lífið samstarf






Nýju Harry, Ron og Hermione fundin
Bíó og sjónvarp
