Raunverulegt síldarævintýri í Kolgrafafirði Stefán Árni Pálsson skrifar 23. nóvember 2013 13:40 Menn frá Hafrannsóknarstofnun mæla hér súrefnismetun í Kolgrafarfirði. Myndir /hrund og Heiður Björk Óladóttir
Mikið líf er í Kolgrafafirði þessa stundina en talið er að um hundrað þúsund tonn af síld séu í firðinum þessa stundina. Mikil stilla er í veðri en það eru alls ekki kjöraðstæður fyrir síldina sem fær þá minna súrefni. Nokkuð er af fólki á svæðinu sem reynir að bjarga þessum verðmætum. Breki Logason ræddi við Hrund Þórsdóttur fréttamann sem var á svæðinu fyrir hönd Stöð 2 og Bylgjunnar. „Það er alveg óskaplega fallegt hér núna, algjör stilla og fjörðurinn alveg spegilsléttur. Það eru ekki kjöraðstæður fyrir síldina þar sem súrefnið nær ekki eins vel til síldarinnar eins og auðið er. Fyrir síldina er í raun best að hafa rok og rigningu,“ sagði Hrund Þórsdóttir í Kolgrafafirði en mokveiði er nú í firðinum. „Það er töluvert magn af fólki í firðinum núna og bátarnir eru að týnast hver af öðrum undir brúna. Mér skilst að það séu að minnsta kosti átta bátar komnir inn fyrir brú. Einn þeirra veiddi um fimm tonn á tveimur tímum. Það er talið að það séu allt að hundrað þúsund tonn af síld fyrir innan brú.“ Umhverfisráðherra ákvað í gær að gefa síldveiðar frjálsar innan brúar í firðinum. Bóndi í Kolgrafafirðir segir raunveruleg síldarævintýri nú í gangi í firðinum. Um fimmtíu þúsund tonn af síld drápust í Kolgrafafirði á síðasta ári. Þá voru aðstæður nokkuð svipaðar og nú, fjörðurinn kjaftfullur af síld. Umhverfisráðherra ákvað í gær að gefa síldveiðar frjálsar í firðinum en vonast er til að veiðarnar verði bæði til þess að bjarga verðmætum og að hafa fælingarmátt á síldina, þannig að hún fari fyrr úr firðinum. Ljóst er að annar síldardauði í Kolgrafafirðir myndi hafa verulega áhrif á náttúru Kolgrafafjarðar og því liggur á að skófla upp þeirri síld sem nú er í firðinum.Hafsteinn Harðarson er hafnarstjóri í Grundarfirðir og hefur fylgst með veiðum í morgun. „Mér skilst að það hafi verið mjög góð veiði á töluvert stóru svæði í morgun,“ sagði Hafsteinn í samtali við Bylgjuna í hádeginu. „Það eru komnir átta bátar til veiða eins og staða er núna. Það er mjög mikið af síld þarna fyrir innan brú, eftir því sem menn á bátunum segja mér. Það getur reynst hættulegt að sigla þarna inn og menn verða fara varlega.“ Bjarni Sigurbjörnsson, bóndi á Eiði í Kolgrafafirði, fylgist grannt með gangi mála í firðinum. Óhætt er að segja að Bjarni þekki síldina vel enda drápust um fimmtíu þúsund tonn af síldinni í fjörunni við Eiði á síðasta ári. Bjarni segir raunverulegt síldarævintýri nú í gangi í Kolgrafafirði. „Nú stend ég út á bakka hjá mér í dauðalogni og horfi á enn eitt síldarævintýrið hér í Kolgrafarfirði. Sem betur fer að það fallegra núna en í fyrra. Maður hefur vissulega dúndrandi áhyggjur og það hafa það allir. Það getur verið mjög hættulegt að sigla undir brú og inn í fjörðinn.“
Mest lesið Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Innlent Segja boltann hjá stjórnvöldum Innlent Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Innlent Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Innlent Fleiri fréttir Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Sjá meira