Fékk aðstoð við fjármögnunina Gunnar Leó Pálsson skrifar 21. nóvember 2013 23:00 ÍRiS fékk aðstoð Karolinafund við að gefa út sína nýjustu plötu, Penumbra. mynd/nanna dís
Tónlistarkonan ÍRiS hefur sent frá sér hljómplötuna Penumbra. Plötuna fjármagnaði ÍRiS sjálf en prentunin var fjármögnuð í gegnum fjármögnunarsíðuna Karolinafund. Hún er tekin upp í Sundlauginni, sem er stúdíó Sigur Rósar, og einnig í Gróðurhúsinu og var líka hljóðblönduð þar. Á plötunni leikur ÍRiS sér með andstæður í tónlist og tvinnar hefðbundin hljóðfæri á borð við selló, píanó og antíkhljóðfæri saman við ýmsa rafhljóðgjafa. Niðurstaðan verður lifandi samsetning sem er í senn lífræn og rafræn. Nafn plötunnar er tilvísun í þessa nálgun, en Penumbra táknar það svæði þar sem algjört myrkur og algjört ljós mætast, eða í þessu tilviki, þar sem andstæður í tónlist mætast. Platan hefur fengið prýðisdóma og gaf til að mynda Iceland Review plötunni fimm stjörnur. Þess má einnig geta að síðastliðið vor kom út myndband við eitt af lögum plötunnar, Swiftly Siren í leikstjórn Peter Szewczyk, sem bauðst til að koma til Íslands eftir að hafa heyrt lagið á netinu. Þetta telst stórt skref í kjölfar fyrstu hljómplötu því Szewczyk er þekktur í heimi tæknibrellna og hefur unnið að fjölda kvikmynda, líkt og Avatar, tveimur Harry Potter-myndum, auk þess að hafa leikstýrt stuttmyndum og tónlistarmyndböndum fyrir hljómsveitir á borð við Skunk Anansie og The Maccabees. Myndbandið við lag ÍRiSar var tekið upp á Reykjanesi. Myndbandið, plötuna og fleira má finna á heimasíðunni irismusiciris.com.
Mest lesið Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Lífið „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Lífið Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Lífið Ekki er allt sem sýnist í Dimmu Tónlist Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Lífið Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Lífið Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Lífið Allir og amma þeirra í bókaklúbb Lífið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum Lífið Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Lífið Fleiri fréttir Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Allir og amma þeirra í bókaklúbb Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Tónlist sem tekur á skömm og ótta með nokkrum blótsyrðum Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Fréttatía vikunnar: Bó, vatn og vopnahlé Leitaði upprunans og fékk óvænta frænku í heimsókn Páll Edwald og Selma Eir trúlofuð „Er ég að klikka strax í 50?“ „Maður þarf að gera alla hluti upp“ Umdeildi brautryðjandinn Afrika Bambaataa allur Lærði að lifa lífinu upp á nýtt eftir alvarleg veikindi Sjarmatröllið sem setti popptónlist í öndvegi Halla gerir undantekningu vegna andlátsins Það er komið gó hjá Bó Svala minnist pabba síns Tekur við af dóttur kærastans Lifir með sjúkdóminum en lætur ekkert stöðva sig Skilnaður foreldranna mótað hana einna mest Hórdómur vinsældanna: Núll stjörnur Hvað veistu um… styttur í Reykjavík? Söfnuðu kleinuhringjum ofan í fötu með skrautlegri aðferð Sjá meira