Frumsýnir heimildarmynd um dauðann Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar 21. nóvember 2013 09:00 Dauðans alvara er fyrsta heimildarmyndin sem Áslaug lýkur við. Fréttablaðið/Valli
Heimildarmyndin Dauðans alvara er frumsýnd í Bíó Paradís í kvöld. Myndin segir frá ferlinu sem á sér stað frá andláti til grafar en leikstjóri myndarinnar, Áslaug Baldursdóttir, fékk hugmyndina þegar hún var að ljúka meistaranámi. „Hugmyndin kom til mín þegar ég var að ljúka meistaranámi í hagnýtri menningarmiðlun í Háskóla Íslands. Mig langaði að tengja lokaritgerðina mína um dauða í íslensku samfélagi við raunverulegt verkefni. Ég hafði aðeins verið að fikta í heimildarmyndagerð og fékk þá hugmynd að gera mynd um útfararþjónustu aðallega vegna þess að ég hafði ekki séð neitt því líkt hér á landi. Auk þess hefur ekki verið nein alvöruumfjöllun um hvað gerist frá andláti til grafar hér á landi. Mér fannst áhugavert að opna þá umræðu í staðinn fyrir að líta á þetta sem tabú,“ segir Áslaug. Hún leikstýrir heimildarmyndinni Dauðans alvara en í henni er sagt frá því ferli sem á sér stað frá andláti til grafar. Áslaug setti sig í samband við Útfararþjónustuna í Reykjavík og voru viðbrögðin betri en hún átti von á. „Rúnar Geirmundsson og synir hans hjá Útfararþjónustunni í Reykjavík voru tilbúnir að leyfa mér að mynda og ég var með þeim í um það bil viku. Ég fékk mjög mikinn aðgang að öllu og þeir treystu mér vel fyrir efninu. Þetta er fræðsluheimildarmynd. Ég læt myndefnið tala og ég tala ekki sjálf inn á myndina. Þeir sem horfa á myndina eiga ekki að hafa neinar spurningar um ferlið þegar sýningunni er lokið. Það er margt sem maður veit ekki um þetta ferli en þetta er eitthvað sem allir þurfa að kljást við einhvern tíma á lífsleiðinni, því miður.“Myndin er frumsýnd í kvöld í Bíó Paradís.Myndin er fimmtíu mínútur að lengd en styttri útgáfa af henni var sýnd á Skjaldborgarhátíðinni síðasta sumar. „Þar fékk ég rosalega góðar viðtökur frá fólki á öllum aldri sem kom mér eiginlega á óvart.“ Dauðans alvara er frumsýnd í dag í Bíó Paradís og verður auk þess sýnd bæði laugardag og sunnudag. Ekki er ljóst hvort sýningarnar verða fleiri en Áslaug hefur áhuga á að gera fleiri heimildarmyndir í framtíðinni. „Þetta er fyrsta heimildarmyndin sem ég klára og ég hef mikinn áhuga á að gera fleiri myndir. Þetta er ástríða hjá mér og mér finnst þetta virkilega gaman og gefandi.“
Mest lesið Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Lífið Loksins sást til hjónanna Lífið Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Lífið Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Lífið Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Lífið Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Lífið Björk og Yara nýtt par Lífið „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Lífið Joanna Pettet er látin Bíó og sjónvarp Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta Lífið Fleiri fréttir Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út Sjá meira