App sem skrifar upp nótur sjálfkrafa kemur bráðum á markað Ugla Egilsdóttir skrifar 21. nóvember 2013 14:15 Mynd/Einkasafn
Hagnýtingarverðlaun Háskóla Íslands verða afhent í dag í fimmtánda sinn. Peningaverðlaun eru veitt fyrir þrjú efstu sætin. Af þessu tilefni bjallaði Fréttablaðið í þá sem lentu í öðru sæti í fyrra og spurði hvernig verkefninu hefði undið áfram í framhaldi af verðlaununum. Hilmar Þór Birgisson fékk önnur verðlaun í fyrra fyrir hugmynd sína um tóngreini til tónbilaæfinga á smátækjum. Hilmar gerði meistaraverkefni sitt í rafmagns- og tölvunarverkfræði um hugmyndina og er nýútskrifaður. Auk hagnýtingarverðlauna Háskóla Íslands fékk verkefnið frumherjastyrk Rannís. Upp úr því stofnaði Hilmar fyrirtækið Tóngreini ehf. Núna vinnur Hilmar fulla vinnu við að koma tóngreininum á koppinn. „Þetta kemur bara sem lítil hugsun í byrjun, byggð á merkjafræðigreiningu. Hugmyndin er sú að fólk geti til dæmis sungið inn laglínu sem appið skrifar upp sjálfkrafa sem nótur.“ Hilmar segir hópinn ætla sér einföld skref til að byrja með. „Erum að greina eina laglínu eins og er, en ekki margar raddir í einu.“ Hilmar viðurkennir að á markaðnum sé ýmislegt í boði sem svipar að einhverju leyti til tóngreinisins. „Margt af því er klunnalegt, en við sáum að minnsta kosti eitt sem gæti valdið okkur mikilli samkeppni. Hinsvegar býður það ekki upp á allt sem við ætlum að hafa. Til dæmis er það þannig í því appi að ef þú spilar inn laglínu, þá geturðu ekki lagað til nóturnar eftir á í appinu. Í okkar appi verður hægt að krukka meira í nótunum eftir á.“ Hilmar Þór er eigandi og framkvæmdastjóri Tóngreinis ehf. Með honum vinna þrír verktakar í litlu hlutastarfi og hjálpa Hilmari við forritun og grafíska vinnslu, ásamt aðstoð við tónfræðilegu hliðarnar. Hópurinn stefnir á að gefa út öpp á næstu mánuðum.
Mest lesið „Átti ekki efni á Icelandair til Tene en hér er ég“ Lífið Kvikmyndirnar sem beðið er eftir 2026 Bíó og sjónvarp „Við náðum að nýta hverja einustu stund með pabba“ Lífið Gugga í gúmmíbát og Patrekur Jaime í eina sæng Lífið Svona heldur Rakel sér unglegri Lífið Eigandi lúxushótels selur miðbæjarperlu Lífið Íþróttapar keypti einbýlishús í Hafnarfirði á 162 milljónir Lífið „Þetta er ekki uppgjör á mínu uppeldi“ Tónlist Þú færð ekki leikskólapláss en svona á að halda barnaafmæli Lífið Lúxusferðaforstjóri og kaupmaður selja í gamla Vesturbænum Lífið Fleiri fréttir Íþróttapar keypti einbýlishús í Hafnarfirði á 162 milljónir Svona heldur Rakel sér unglegri Gugga í gúmmíbát og Patrekur Jaime í eina sæng „Átti ekki efni á Icelandair til Tene en hér er ég“ „Við náðum að nýta hverja einustu stund með pabba“ „Þessu hef ég verið háður býsna lengi“ Eigandi lúxushótels selur miðbæjarperlu Lúxusferðaforstjóri og kaupmaður selja í gamla Vesturbænum Þú færð ekki leikskólapláss en svona á að halda barnaafmæli Sólveig Anna greinir woke-ið Bergþór og Laufey selja slotið Svona sjá Pétur og Heiða leikskólavandann Eyddi kröfulistanum sem hann birti í gríni Rosalia komin með skvísu upp á arminn „Og leynigesturinn er enginn annar en…“ Inga Tinna selur höllina í Borgartúni Kiefer Sutherland handtekinn grunaður um líkamsárás Sjóðheit trend sem taka yfir á nýju ári Innflytjendamálin eru fíllinn í stofunni Júnía Lín komin í milljónaklúbbinn Skóli við rætur Vatnajökuls Faðir Dilberts allur Tvö ár af ást hjá Charlie og Laufeyju Slíðruðu sverðin á árshátíð borgarstjórnar Diddy selur svörtu einkaþotuna Gummi Tóta og Guðbjörg eiga von á öðru barni Ragnheiður fékk heilablóðfall á Spáni „Hvaða rugl er þetta?“ „Besti tími lífs míns hingað til“ Spá Ísrael sigri marga mánuði fram í tímann Sjá meira