Geðheilbrigðisstefnu þarf á Íslandi Hjörtur Hjartarson skrifar 21. nóvember 2013 19:15
Hafrún Kristjánsdóttir, sálfræðingur Sala á þunglyndislyfjum hefur ríflega þrettán-faldast á undanförnum þrjátíu árum en á sama tíma hefur öryrkjum vegna þunglyndis ekki fækkað. Engin þjóð innan OECD notar jafnmikið af þunglyndislyfjum og við Íslendingar. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu sem OECD, efnahags og samvinnustofnun Evrópu birti í dag. Mikil aukning hefur verið í notkun þunglyndislyfja hjá iðnvæddum þjóðum en hvergi meiri en á Íslandi. 106 dagskammtar af þunglyndislyfjum eru seldir á Íslandi á hverja 1000 þúsund íbúa sem þýðir að um tíundi hver landsmaður er á slíkum lyfjum. Ein ástæða fyrir þessum háu tökum er sú að fá úrræði eru í boði fyrir þunglyndissjúklinga hérlendis önnur en lyfjataka. "Heimilislæknar geta ávísað þunglyndislyfjum, það er eiginlega ekkert annað sem þeir geta vísað skjólstæðingum sínum í. Mögulega í sálfræðimeðferð úti í bæ en hún kostar bara mjög mikið er ekki á færi mjög margra,"segir Hafrún Kristjánsdóttir, sálfræðingur. Doktorsverkefni Hafrúnar er um svokallaða hugræna atferlismeðferð sem gefið hefur góða raun í baráttunni við þunglyndi, áhrifin eru svipuð og af lyfjum en batahorfur til lengri tíma mun meiri. "Ef þú hættir að taka þunglyndislyf þá hafa rannsóknir sýnt að allt að 70 prósent af fólki verður veikt aftur og þarf því að halda áfram að taka lyf. Á meðan þú ferð í hugræna atferlismeðferð í kannski 2-3 mánuði þá eru flestir sem halda áfram að batna og ná árangri. Auðvitað eru alltaf einhverjir sem hrasa en til lengri tíma litið þá er þetta miklu hagkvæmara meðferðarform."Hrannar Jónsson, formaður GeðhjálparKostnaður þjóðfélagsins vegna veikinda þegna sinna er mikill í krónum talið svo ekki sé minnst á skert lífsgæði þeirra sem seint eða hreinlega aldrei ná bata. Leita verði annarra lausna við að leysa vanda þunglyndissjúklinga og er hugræn atferlismeðferð oftast nefnd í því samhengi. Undir það tekur, Hrannar Jónsson, formaður Geðhjálpar sem þekkir sjúkdóminn á eigin skinni. "Já, ég leitaði annarra lausna. Ég notaði ekki síst þessar aðferðir að fást við mína eigin fordóma. Að komast inn í samfélag fólks sem er sjálft að glíma við þessa hluti og þar eru mjög margir góðir hlutir," segir Hrannar. Hrannar segir að marka þurfi heildstæða geðheilbrigðisstefnu þar sem horft er til fleiri þátta þunglyndislyfja. "En ég held að það sé engin ein galdralausn sem virki fyrir alla. Stundum þarf að líta á allan pakkann."
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Innlent Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Innlent Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Innlent Fleiri fréttir „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Loka fyrir umferð vegna bilunar í umferðarljósum Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Sjá meira