Innlent

Garðbæingar greiða áfram lægsta útsvarið

Stefán Árni Pálsson skrifar
Óbreytt útsvar í Garðabæ.
Óbreytt útsvar í Garðabæ.
Garðbæingar greiða enn óbreytt útsvar en þetta var ákveðið á fundi bæjarstjórnar Garðabæjar í dag.

Útsvar bæjarbúa verður því áfram 13,66% sem er það lægsta á höfuðborgarsvæðinu. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá bæjarstjórn Garðabæjar.

Þá hefur verið kynnt við umræðu um fjárhagsáætlun að þjónustugjöld í Garðabæ hækka ekki á árinu 2014. 

Í Garðabæ munu því leikskólagjöld, gjöld í tómstundaheimili, skólamatur, heimaþjónusta eldri borgara o.fl. verða óbreytt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×