Slökkviliðið fór í 25 þúsund útköll 8. janúar 2013 16:19 Slökkviliðið við Þjóðleikhúsið. Mynd/ Daníel.
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins (SHS) sinnti yfir 25 þúsund útköllum á árinu 2012. Þar af voru rúmlega 1.200 útköll vegna slökkviliðs en yfir 24 þúsund útköll vegna sjúkraflutninga, eða í kringum 95% allra útkalla SHS. Heildarfjöldi útkalla jókst um 618 á milli ára. Sjúkraflutningum er skipt niður í fjóra flokka eftir alvarleika. Þannig eru F1 og F2 svokallaðir neyðarflutningar, F3 vegna vægari sjúkdómstilfella eða minni slysa og F4 vegna flutninga á fólki á milli stofnana. Alls voru 6.602 neyðarflutningar á árinu 2012 en mesta aukningin var í F3 flutningum sem fjölgaði um 911 frá því í fyrra. Ef útköll eru skoðuð eftir mánuðum var slökkviliðið oftast kallað út í janúarmánuði í fyrra, eða samtals í 135 útköll, en mest var um sjúkraflutninga í desember, alls 2.202 útköll. Fæst útköll voru aftur á móti vegna slökkvi- og björgunarstarfa í september í fyrra og í apríl voru fæst útköll vegna sjúkraflutninga. Í 114 tilfellum var ástæða útkalla SHS eldur í byggingu en árið 2011 voru þau tilfelli 144 talsins og hefur því fækkað um 30 á milli ára. Það er mjög jákvæð þróun sem SHS þakkar aukinni meðvitund almennings um eldvarnir og síaukinni áherslu á forvarnir. Af öðrum útköllum vegna slökkvi- og björgunarstarfs í fyrra má nefna útköll vegna brunaviðvörunarkerfa, óveðurs eða annarra óhappa. Forvarnasvið SHS sinnti vel yfir 3.000 eldvarnaskoðunum á síðasta ári, framkvæmdi rúmlega 200 loka- og öryggisúttektir og heimsótti tæplega 130 staði vegna veitingahúsaeftirlits. Það eru því næg verkefni hjá SHS allt árið um kring, eins og tölurnar gefa til kynna, og jákvæður taktur í fyrirbyggjandi verkefnum sem skila sér í færri útköllum vonandi til lengri tíma litið.
Mest lesið Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Erlent Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Erlent Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Erlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Innlent Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Fleiri fréttir „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Sjá meira