Trúður í felum 9. desember 2013 11:00 Þetta er önnur plata söngkonunnar og lagasmiðsins. Mynd/Óskar Pétur Friðriksson
Söngvarinn og baráttukonan Stella Hauks gaf út aðra plötu sína á dögunum en hún ber nafnið Trúður í felum. Stella fer þar um víðan völl og gerir að sögn upp viðburðaríka ævi sína. „Þetta er svona yfirferð yfir lífið,“ segir Stella sem vakið hefur athygli fyrir opinskáa og hreinskilna textasmíð. „Nafnið Trúður í felum er tilvísun í það að vera miðaldra kona í samfélaginu,“ segir hún um heiti plötunnar, sem er jafnframt heiti eins laga hennar. „Það er svolítið þannig að maður gengur um bæinn og finnur að maður er bara ekki á sama tíma og aðrir.“ Söngkonan neitar því ekki að hún sé farin að finna svolítið fyrir árunum og hefur hún glímt við veikindi undanfarið. „Það bara fylgir aldrinum,“ segir Stella sem er astmasjúklingur. Stella kláraði plötuna á æskuslóðum sínum í Vestmannaeyjum, en þangað flutti hún aftur nýlega. Platan var unnin með hjálp nokkurra þekktra tónlistarmanna, en meðal þeirra má nefna Andreu Gylfadóttur og Tómas Tómasson úr Stuðmönnum. Hún segir það koma sér mjög vel að hafa svona hæfileikaríka kunningja innan handar. „Þetta eru bara vinir mínir,“ segir Stella. „Ég hefði nú ekki gert neitt án þeirra.“ Fyrri plata Stellu kom út árið 1999 og bar einfaldlega nafnið Stella. Á þeirri plötu söng Stella á áhrifaríkan átt um samkynhneigð sína og var trúbadorstíl hennar líkt við tónlist Hauks Torfasonar og Bubba Morthens.
Mest lesið „Ég fór úr sjötíu prósent þjáningu niður í tíu prósent“ Lífið „Svo byrjaði ég að kyssa stráka og varð allt í einu algjör uppreisnarseggur“ Lífið Pedro Pascal fékk sér að borða á Kaffi Vest Lífið Áhorfendur djúpt snortnir á forsýningu Stóru stundarinnar Lífið Stærsti sinueldur Íslandssögunnar í myndum Lífið Verðmiðinn hækkar á höll Antons Lífið Hátt í þrjú þúsund manns sóttu „þjóðfund“ EVE-spilara Lífið Milljón manns í Rio til að sjá ókeypis Lady Gaga tónleika Lífið Forstjórabaninn fær söngleik á fjalirnar Lífið Krakkatían: Nintendo, tunglið og prinsessur Lífið Fleiri fréttir Pedro Pascal fékk sér að borða á Kaffi Vest Hátt í þrjú þúsund manns sóttu „þjóðfund“ EVE-spilara Áhorfendur djúpt snortnir á forsýningu Stóru stundarinnar Stærsti sinueldur Íslandssögunnar í myndum „Ég fór úr sjötíu prósent þjáningu niður í tíu prósent“ „Svo byrjaði ég að kyssa stráka og varð allt í einu algjör uppreisnarseggur“ Krakkatían: Nintendo, tunglið og prinsessur Milljón manns í Rio til að sjá ókeypis Lady Gaga tónleika Býður í hláturstund við gömlu þvottalaugarnar Sýningin gott fyrir- og eftirpartý Ingvar E. valinn besti leikarinn í Belgíu Forstjórabaninn fær söngleik á fjalirnar „Ye mátti þola versnandi andlega heilsu vegna gjörða þinna“ Fréttatía vikunnar: Rafmagnsleysi, njósnir og SFS Ætlaði aldrei að enda í herskóla í Bandaríkjunum Með höfuðið rétt skrúfað á og gleyma aldrei hjálminum „Ég er búin að fæða þrjú börn en þetta er versta sem ég hef upplifað“ Þakka aðdáendum fyrir að hafa fjármagnað nýja húsið Íslenski Eurovision-hópurinn lagður af stað Mætti í eigið afmæli í lokaðri líkkistu Verðmiðinn hækkar á höll Antons Skúli og Gríma fengu sér hund Menningarlegt heimili með stórbrotnu útsýni Stærsta tímahylki Íslandssögunnar Langar að berjast við OnlyFans-stelpur Margbraut á sér ökklann á Snæfellsjökli Söngkonan Jill Sobule lést í húsbruna Dóttir De Niro kemur út sem trans Rapphljómsveit til rannsóknar hjá hryðjuverkadeildinni Segist hafa gert merka uppgötvun nú þegar hann „nálgast endalok lífs“ síns Sjá meira