Bílar Kópavogsbæjar eyða helmingi minna Garðar Örn Úlfarsson skrifar 9. desember 2013 07:30 Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri við einn hinna sparneytnu bíla Kópavogsbæjar. Tæpur helmingur af þrettán bílum þjónustuvers bæjarins eyðir aðeinl sex lítrum á hundraðið. Fréttablaðið/Vilhlem
Eldsneytiseyðsla bílaflota þjónustuvers Kópavogsbæjar hefur minnkað um helming á tveimur árum. „Við hjá Kópavogsbæ höfum markvisst á undanförnum misserum verið að skipta út eldri og bensínfrekum bílum fyrir minni og sparneytnari bíla. Nýju bílarnir eyða um helmingi minna en þeir sem eldri voru,“ segir Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri við Fréttablaðið. Málið var rætt í bæjarráði er Ólafur Þór Gunnarsson úr Vinstri grænum lagði til að við endurnýjun á bílakosti bæjarins verði fyrst og fremst horft til bíla sem ekki nota kolefnaeldsneyti, eða nota það í litlum mæli. Mikilvæg skilaboð til samfélagsins séu að stór opinber aðili eins og Kópavogur taki slíka ákvörðun. „Nú fást á markaði rafmagns- og tengiltvinnbílar frá flestum helstu framleiðendum bifreiða. Verð slíkra kosta hefur farið lækkandi og rekstrarkostnaður er hverfandi borið saman við hefðbundna kolefnaeldsneytisbíla,“ segir í tillögu Ólafs sem bæjarráð samþykkti að vísa til úrvinnslu hjá umhverfis- og samgöngunefnd bæjarins. Ármann bæjarstjóri sagði á fundinum að öll bílakaup Kópavogsbæjar hefðu tekið mið af því að minnka útblástursmengun. Hann benti á að eldsneytiseyðsla bílaflota þjónustuvers bæjarins hefði minnkað um helming á tveimur árum. Þar er um að ræða alls þrettán bíla sem bæjarstarfsmenn geta notað. Meðal annars nýtir heimaþjónusta velferðarsviðs bílana. Sex bílanna eyða sex lítrum á hverja hundrað ekna kílómetra en hinir eyða tíu til tólf lítrum á hundraðið samkvæmt upplýsingum frá bæjarskrifstofunum. „Ég er líka opinn fyrir hugmyndinni um rafmagnsbíla og mun mæla með því að slíkur bíll verði keyptur næst þegar þarf að endurnýja bíl hjá bænum,“ segir bæjarstjórinn.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Innlent Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fleiri fréttir Loka fyrir umferð vegna bilunar í umferðarljósum Ljúfsárt að opna loks nýtt og stærra Kvennaathvarf Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sjá meira