Ríkið greiðir milljónir vegna herferðar sem var hætt við Boði Logason skrifar 5. september 2013 07:00 Inspired by Iceland kostaði íslenska ríkið 700 milljónir en talið er að það hafi skilað sér allt að fimmtíufalt til baka. Mynd/aðsend
Íslenska ríkið hefur fallist á að greiða auglýsingastofunum ENNEMM og Hvítahúsinu tíu milljónir króna í skaðabætur vegna tilboðsgerðar í herferð sem síðar varð Inspired by Iceland. Alls voru fimm auglýsingastofur sem gerðu tilboð í verkið en þegar þær höfðu skilað inn tilboðum sínum hætti iðnaðarráðuneytið við útboðið og fór í staðinn í markaðsátakið Inspired by Iceland. Ein af þessum auglýsingastofum, Jónsson & Le‘macks, fór þá í mál við íslenska ríkið eftir að það neitaði að greiða útlagðan kostnað vegna tilboðsgerðarinnar. Málið vannst í Hæstarétti og var íslenska ríkinu gert að greiða auglýsingastofunni skaðabætur. ENNEMM og Hvíta húsið sendu þá sams konar reikninga á ráðuneytið með vísan í dóm Hæstaréttar. Ráðuneytið neitaði að greiða þeim reikningana, meðal annars á þeim forsendum að auglýsingastofurnar tvær hefðu ekki átt raunhæfa möguleika á að vera valdar. Auglýsingastofurnar mótmæltu þessu og sögðu meðal annars að allar auglýsingastofurnar hefðu átt raunhæfan möguleika á að vera valdar til að sinna verkefninu – líkt og kom fram í nýföllnum dómi Hæstaréttar. Í ágúst síðastliðnum féllst ráðuneytið á að greiða kröfur ENNEMM og Hvíta hússins að fullu, ásamt vöxtum, dráttarvöxtum og kostnaði. Krafan hefur nú verið greidd af íslenska ríkinu, yfir tíu milljónir króna. Búast má við því að hinar tvær auglýsingastofurnar, Fíton og Íslenska auglýsingastofan, sem sendu einnig tilboð í verkið krefji ríkið um sams konar skaðabætur. Þá er kostnaður íslenska ríkisins orðinn töluverður vegna útboðsins. Ríkið greiddi Jónson & le'macks hátt í sex milljónir króna í skaðabætur, Hvíta húsinu og ENNEMM yfir tíu milljónir. Þá er ekki tekinn með lögfræðikostnaður. Þá má búast við að kostnaðurinn hækki ennfrekar ef ríkið sér fram á að þurfa að greiða, Fíton og Íslensku auglýsingastofunni, skaðabætur vegna tilboðsgerðarinnar.
Mest lesið Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Erlent Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Innlent Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Erlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Innlent Fleiri fréttir Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Sjá meira