Almenningur reki verslun á Hvolsvelli Garðar Örn Úlfarsson skrifar 24. október 2013 07:00 Verslunin Kjarval er í gamla Kaupfélagshúsinu sem Rangárþing eystra á við þjóðveginn sem liggur í gegn um Hvolsvöll. Fréttablaðið/Vilhelm Fréttablaðið/Vilhelm „
Við viljum berjast til síðasta blóðdropa,“ segir Elvar Eyvindsson, kúabóndi og fulltrúi Sjálfstæðisflokks í sveitarstjórn Rangárþings eystra sem hyggst ræða stofnun almennningshlutafélags um rekstur dagvöruverslunar á íbúafundi. Rangæingar hafa lengi verið ósáttir við verðlag í versluninni Kjarval sem Kaupás rekur á Hvolsvelli eins og á mörgum öðrum stöðum á Suðurlandi. Þrátt fyrir mikla eftirgangsmuni hefur engin lágvöruverðskeðja fengist til að opna verslun á staðnum þótt heimamenn sjálfir telji grundvöll til þess. Tillaga Elvars og Kristínar Þórðardóttur um íbúafundinn var samþykkt samhljóða í sveitarstjórninni. Þar á „láta reyna á hvort samtakahugur íbúanna er nægilegur til að menn sameinist um stofnun og rekstur slíks fyrirtækis,“ eins og segir í tillögunni. „Ef það er ekki lágvöruverðsverslun þá getur hver sem er rekið þarna svipaða búð og er í dag. Og það væri alveg eins gott að heimamenn gerðu það,“ segir Elvar.Elvar Eyvindsson, kúabóndi og sveitarstjórnarmaður í Rangárþingi eystra.Rangárþing ytra á gamla Kaupfélagshúsið þar sem Kjarval er. Leigunni hefur verið sagt upp frá áramótum en verslunin hefur forleigurétt. „Það er ekki auðvelt en kannski vill fólk hafa það tómt og bjarga sér í öðru húsnæði á meðan við erum að losna frá þessum forleigurétti,“ segir Elvar um þá stöðu. Þá bætir Elvar við að hann telji landsbyggðina að vissu leyti ofurselda verslunarkeðjum sem bjóði ekki sérlega gott verð. „Það sem verður eftir hjá okkur eru láglaunastörfin en öll yfirstjórnin er annars staðar og hagnaðurinn fer annað líka,“ segir Elvar sem kveður heimamenn engar áhyggjur hafa af því að verslun leggist af á Hvolsvelli. Yfir þrjú hundruð þúsund ferðamenn fari um bæinn á ári. „Auðvitað vilja verslunareigendur mjólka það án þess að við njótum en við viljum láta reyna á það til hins ítrasta hvort ekki sé hægt að koma því í betra horf,“ segir Elvar. „Við erum sannfærð um að það er hægt að vera með skikkanlegri verð. Ef þeir geta það ekki þá viljum við bjóða einhverjum öðrum það. Og ef enginn annar getur þetta þá getum við alveg eins gert þetta sjálf.“
Mest lesið Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Erlent Þvertekur fyrir nokkur tengsl Erlent Algjör nýliðun í stjórn samtaka gegn spillingu Innlent Furðar sig á vinsælustu fæðingarstellingunni Innlent Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Erlent Hafi óvart tekið símann með sér en ekki rænt honum Innlent Bílastæðamálin fæli fólk frá miðborginni Innlent Björgvin Halldórsson látinn Innlent Þrettán ár fyrir ítrekuð brot gegn stjúpdóttur Innlent Gabríel Douane játaði óvænt að hafa barið fangaverðina Innlent Fleiri fréttir Algjör nýliðun í stjórn samtaka gegn spillingu Furðar sig á vinsælustu fæðingarstellingunni Bílastæðamálin fæli fólk frá miðborginni Þrettán ár fyrir ítrekuð brot gegn stjúpdóttur Tilkynnt um þjófnað í þremur verslunum Goðsögn fallin frá Hafi óvart tekið símann með sér en ekki rænt honum Bein útsending: Ársfundur Seðlabankans Hvetur til varúðar með gervigreind í aðdraganda kosninga Þau skipa L-listann á Akureyri Björgvin Halldórsson látinn Vísindi á vordögum: Kulnun og álag Ógnarhröð þróun geti líka nýst til góðs Vísað úr landi eftir búðarhnupl Uppsögn Ragnars Freys, öryggisógnir og íslenskur þorskur Segist ekki hafa fengið boð um hærra starfshlutfall Ragnari Frey býðst hærra starfshlutfall á Landspítalanum Segir furðu sæta að hagfræðingur telji námslán gjöf Stálvirki nýrrar Ölfusárbrúar flutt úr Þorlákshöfn á verkstað Þrír í fimm ára fangelsi fyrir kókaínsmygl Gabríel Douane játaði óvænt að hafa barið fangaverðina Freyr Gígja frá RÚV til dómsmálaráðuneytis Forðaðist skólann sem barn en fræðir foreldra um valkosti í dag Flestum þykir stjórnvöld standa sig illa í útlendingamálum Krían komin um tveimur vikum á undan áætlun Fólksfjölgun fór langt fram úr spá á Ísafirði Flæddi út um leka lögn á meðan fólk flúði vegna vatnsskorts Kollegar furðu lostnir og gagnrýna uppsögn Ragnars Strandaglópar á Tenerife eftir að hafa verið meinaður aðgangur að flugi Þriðja flugbrautin í Keflavík „rosalega dýr framkvæmd“ Sjá meira