Bara einn leikur af tólf sem eru eftir Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 15. júlí 2013 13:31 Mynd/Daníel
Ásmundur Arnarsson, þjálfari Fylkis, hefur fundið fyrir góðum stuðningi stjórnar knattspyrnudeildar Fylkis þrátt fyrir slæmt gengi í upphafi Íslandsmótsins. Fylkir er í næstneðsta sæti deildarinnar með þrjú stig, rétt eins og botnlið ÍA en þessi lið mætast einmitt í Árbænum klukkan 19.15 í kvöld. „Það eru gríðarlega mikilvæg stig í boði fyrir okkur - þó svo að þetta séu bara þrjú stig eins og í öðrum leikjum,“ sagði Ásmundur í samtali við Vísi í dag. „Þó þetta sé vissulega stór leikur fyrir okkur þá er hann bara einn af tólf sem eru eftir. Við erum bara að reyna að safna stigum.“ Ásmundur segir að leikmenn séu vel stemmdir fyrir slaginn gegn ÍA og að æfingar hafi gengið vel. „Ég trúi ekki öðru en að menn verði klárir fyrir þennan leik,“ segir hann en Fylkir er eina liðið í Pepsi-deild karla sem hefur enn ekki unnið leik. Liðið hefur þar að auki ekki fengið stig á heimavelli í sumar. Þrátt fyrir allt þetta nýtur Ásmundur trausts stjórnar knattspyrnudeildarinnar og á ekki von á öðru en að þannig verði það áfram. „Við höfum verið að tala mikið saman og funda út af leikmannamálunum. Það er í skoðun að styrkja hópinn í félagaskiptaglugganum [sem opnaði í dag] og hugsanlega munum við fá erlenda leikmenn til liðsins.“ „Ég hef fundið fyrir miklum stuðningi frá stjórnarmönnum, þrátt fyrir erfiðar og leiðinlegar aðstæður, og er ég mjög ánægður með það. Það hefur verið gott að vinna með þessum mönnum og hafa þeir stutt vel við bakið á mér og mínum leikmönnum.“ Ásgeir Börkur Ásgeirsson, sem hefur verið í láni hjá norska liðinu Sarpsborg 08, er væntanlegur aftur til landsins á morgun. Þá er Kjartan Ágúst Breiðdal enn frá vegna meiðsla og verður ekki með í kvöld, að sögn Ásmundar.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sport Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Fótbolti Grealish í agabanni hjá Everton Enski boltinn Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Enski boltinn Fleiri fréttir Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Sjá meira