Það átti að knésetja okkur Höskuldur Kári Schram skrifar 14. desember 2013 12:00 „Við náðum þrátt fyrir allt að klára mörg og mikilvæg verkefni þó að ýmislegt yrði undan að láta í lokin," segir Steingrímur um stjórnarsamstarfið við Samfylkinguna. Fréttablaðið/Stefán
Auðvitað sameinuðust mjög voldu hagsmunaöfl í landinu gegn fyrri ríkisstjórn. Þetta var fyrsta hreina [vinstri] stjórn sögunnar. Það stóð aldrei til að hún fengi að sitja út kjörtímabilið. Það átti að knésetja okkur og það fór óendanlega í taugarnar á þeim þegar það tókst ekki. Við sýndum að vinstrimenn geta ekki bara unnið saman heldur unnið þrekvirki við að koma landinu aftur á kjöl og klára heilt kjörtímabil við erfiðustu aðstæður í lýðveldissögunni og geri aðrir betur,“ segir Steingrímur. Ekki skynsamlegt að slíta stjórnarsamstarfinu Össur Skarphéðinsson, fyrrverandi utanríkisráðherra, segir í bók sinni Ár drekans að Samfylkingin hefði átt að slíta stjórnarsamstarfinu við Vinstri græna árið 2012 útaf ESB málinu. Það hefði þjónað hagsmunum Samfylkingarinnar best. „Ég veit ekki hvað hefði verið best fyrir Samfylkinguna en ég held að það hefði ekki verið gott fyrir Ísland og ég var ekki meðmæltur því. Við náðum þrátt fyrir allt að klára mörg og mikilvæg verkefni þó að ýmislegt yrði undan að láta í lokin. Enda var okkur nú ekki beinlínis gert auðvelt fyrir. Muna menn hvernig stjórnarandstaðan var á síðasta kjörtímabili? Það var ekki stjórnarandstaða. Það var mesta niðurrifs og eyðileggingarstarfsemi sem ég hef nokkurntímann orðið vitni að í pólitík og man ég þó stjórnarandstöðu Sjálfstæðisflokksins gegn ríkisstjórn Gunnars Thoroddsen sem var auðvitað heiftúðug,“ segir Steingrímur.Skuldaaðgerðir gagnast fáum Steingrímur setur ýmsa fyrirvara við skuldaaðgerðir ríkisstjórnarinnar sem kynntar voru í lok síðasta mánaðar. Hann fagnar því að tillögurnar séu komnar fram en telur að mörgum spurningum sé enn ósvarað t.d. hvað varðar fjármögnun. Þá segir hann að aðgerðin muni fyrst og fremst gagnast tekjuhærri hópum og það sé miður. „Veikleiki [þessara tillagna] er hinn félagslegi þáttur. Þetta mun fyrst og fremst gagnast tekjuhærri hópunum. Svo er það eins og hver annar brandari að tala um að leigjendum geti staðið til boða að leggja einhvern húsnæðissparnað inn skattfrjálst með þessum hætti. Ætli það verði nú margir sem búa í félagslegu leiguhúsnæði sem geta tekið 4 prósent af launum sínum til hliðar í einhvern svona húsnæðissparnað? Þetta er bara gert til að blása aðgerðina upp og telja okkur trú um að þetta nái til 80% heimila í landinu. Að sjálfsögðu verður það ekki þannig. Þetta er miklu þrengri hópur sem fær þarna úrlausn.“Verðbólgan éti upp allan ávinning Seðlabankinn telur mögulegt að sérfræðihópur ríkisstjórnarinnar hafi vanmetið áhrif skuldaaðgerðanna á verðlagsþróun. Steingrímur tekur undir þær áhyggjur og óttast að verðbólgan muni éta upp allan ávinning heimila. „Við gætum fengið býsna harkalegan bakreikning í hausinn. Ekki bara verðbólguna sem slíka. Ef hún færi aðeins upp um eitt til tvö prósent þá bítur það í á hverju ári. Ef að Seðlabankinn teldi sig knúinn í framhaldinu til þess að hækka vexti þá er það mjög neikvætt fyrir atvinnulífið og alla skuldahliðina í hagkerfinu,“ segir Steingrímur og telur nauðsynlegt að meta nákvæmlega áhrif aðgerðanna. Þá segir Steingrímur að fjármögnunin, þ.e. það sem snertir skattaafslátt í tengslum við séreignasparnaði sé einnig eitthvað sem verði að skoða. Í raun séu stjórnvöld að ýta vandanum inn í framtíðina. „Við erum að ýta þessum hluta vandans, þessum hluta byrðanna yfir á skattgreiðendur framtíðarinnar, þó nokkuð inn í framtíðina. Þetta gætu orðið um 40 milljarðar króna. Sveitarfélögin eiga sérstaklega mikið undir þarna vegna þess að kerfið okkar er þannig að ríkið tryggir sveitarfélögum fullt útsvar og bætir það sem upp á vantar.“Niðurlægjandi málfutningur Steingrímur gagnrýnir ríkisstjórnina fyrir að draga úr framlögum til þróunaraðstoðar. Forystumenn ríkisstjórnarinnar hafa sagt að það sé nauðsynlegt að lækka þróunarstyrki til að efla heilbrigðisþjónustuna. „Er það samboðið íslensku þjóðinni? Vill hún að þessu sé stillt upp þannig af nauðhyggju stjórnmálamönnum að við verðum að velja á milli þess að reyna sýna lit í því að þoka okkar þróunaraðstoð upp á við eða reka Landspítalann. Við erum ekki svo fátækir Íslendingar,“ segir Steingrímur og gagnrýnir að þetta sé sett fram með þessum hætti. „Mér finnst þetta óboðleg tenging. Hún er niðurlægjandi fyrir þjóðina og það sjá það allir að þetta er ekki svona,“ segir Steingrímur.Viðtalið við Steingrím er hægt að sjá í þættinum Pólitíkin á Vísi.
Mest lesið Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Innlent Segja boltann hjá stjórnvöldum Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Innlent Fleiri fréttir Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Sjá meira