Leikfélag Sólheima til Spánar Freyr Bjarnason skrifar 14. desember 2013 07:00 Leikfélag Sólheima er á leiðinni til Spánar í fyrsta sinn í sumar. Edda Björgvinsdóttir verður leikstjóri.
Fljótlega eftir áramót hefjast æfingar hjá Leikfélagi Sólheima á nýju leikriti sem verður frumsýnt á sumardaginn fyrsta, rétt eins og síðustu 82 árin. En þetta árið er óvenjulegt að því leyti að leikfélagið verður í samstarfi við annað leikfélag frá Madrid, höfuðborg Spánar. Í byrjun maí mun spænski hópurinn koma til Íslands og sýna hóparnir saman í Þjóðleikhúsinu á upphafsdegi hátíðarinnar List án landamæra í Reykjavík. Í lok júní fer leikhópur Sólheima í sólina í Madrid og stígur á svið í þekktu leikhúsi þar í borg. „Ég er alltaf svo þakklát og í gleðikasti í hvert skipti sem ég fæ tækifæri til að leikstýra þeim. Það kemst oft ekki fyrir á planinu mínu en núna hef ég tök á að leikstýra þessu spennandi verkefni,“ segir Edda Björgvinsdóttir, stórvinur samfélagsins í Sólheimum, sem ætlar að leikstýra Sólheimaflokknum. Spænski hópurinn er í samstarfi við rithöfundana Auði Jónsdóttur og Þórarin Leifsson við að skrifa verk sem hefur sterka tengingu við Ísland. Sólheimaleikhúsið setur saman verk sem er byggt á verkum Federico García Lorca. Verkefnið er styrkt af þróunarsjóði EFTA. Edda hefur þrívegis áður leikstýrt Sólheimaflokknum og aðspurð segir hún það alltaf jafngaman. „Þetta eru svo stórkostlega einlægir leikarar. Ef þú ætlar að njóta góðrar leiklistar þurfa að vera ekta tilfinningar á ferðinni og þær skorta þau ekki.“ Henni líst vel á að fara í sólina til Spánar með leikfélaginu. „Ég veit að það er mikil tilhlökkun í hópnum. Það verður ofboðslega gaman að fara í útrás með listina. Þetta verður algjört ævintýri og við hlökkum svakalega mikið til að sýna þeim okkar útgáfu af Lorca.“Listrænt uppeldi mikilvægt Leiklistin á Sólheimum er hluti af Rudolf Steiner-mannspekinni. „Hún snýst um að það sé svo mikilvægt að vera með listrænt uppeldi og upplifun til að hjálpa fólki til þroska. Þetta gerir Sólheimana að svo einkennilegu og sérstöku samfélagi því þau vinna við listsköpun,“ segir Edda.
Mest lesið Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Innlent Segja boltann hjá stjórnvöldum Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Innlent Fleiri fréttir Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Sjá meira