Biðlar til fólks að vanda sig Fanney Birna Jónsdóttir skrifar 14. desember 2013 13:32 Ragnar Þór og Norðlingaskóli. Mikil reiði er kraumandi meðal nemenda og foreldra vegna brotthvarfs hins vinsæla kennarans vinsæla. MYND/AF VEF REYKJAVÍKURBORGAR
Ragnar Þór Pétursson, kennari við Norðlingaskóla sem ákvað að hætta í kjölfar þess að skólayfirvöldum barst nafnlaus ábending um að hann væri varhugaverður í námunda við börn, hefur ritað grein þar sem hann biður fólk að vanda sig í umfjöllun um málið. Ragnar greindi ítarlega fá málinu í grein sem hann skrifaði á miðvikudag og viðbrögðin hafa ekki látið á sér standa. Vísir greindi frá því í gær að mikill harmur og tregi væri ríkjandi meðal barna og foreldra við skólann eftir að Ragnar ákvað að hætta vegna málsins. Í nýjustu grein sinni segir Ragnar að honum þyki vænt um þær fjölmörgu kveðjur og stuðningsorð sem hann hafi fengið síðustu daga. Hann segir þó að honum þyki þessi mikli og skilyrðislausi stuðningur svolítið óþægilegur. Ástæða þess er sú sá sem „nýtti sér nafnleynd til að ráðast á [Ragnar] nýtti sér málaflokk sem á að vera heilagur.“ Hann segir að aldrei eigi að hunsa grun um ofbeldi gegn börnum, slík mál eigi að rannsaka vel og vandlega. Einmitt vegna þess að maður eigi að taka slík mál alvarlega eigi að sjálfsögðu að reyna að hindra það að fólk noti slík mál tl að svala illsku sinni og heift. Ragnar biðlar til fólks að taka tillit til þess að starfsmenn Skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar sé bara venjulegt fólk sem varð á. Þau eigi fjölskyldur, börn og kannski barnabörn sem ekki eiga að lesa ljótt um ömmu sína eða afa. Hann segir að réttu viðbrögðin við ranglæti séu ekki reiði og hatur heldur að neita að taka þátt í ranglátu kerfi og krefjast þess að hlutirnir séu bættir. Í þessum málaflokki frekar en öðrum skipti máli að það sé gert á yfirvegaðan og ígrundaðan hátt. Ragnar segist munu fyrirgefa starfsmönnunum ef þau komist einhvern tímann að þeirri niðurstöðu að hann hafi fengið óverðskuldaða meðferð og vilji reyna að bæta fyrir það. Ef þau þrjóskist við og neyði hann til að standa í stappi og málaferlum, þá mun Ragnar ekki leyfa smámenninu innra með sér að ala sjálft sig á heift, það bitni meira á honum en þeim. Ragnar talar beint til nemenda sinna og segist kannski koma aftur. Kannski komi þau aftur, dúndri sér í gegnum kennó og reyni að halda því sem skólinn snýst um á lífi. Loks ræðir Ragnar um skólastýru Norðlingaskóla, sem hann segist hafa fengið stuðning frá en samt þannig að fagmennskan fór fyrir öllu. Hún sýndi honum stuðning og hlýju án þess að fórna fagmennskunni og hún var honum stoð og stytta og gerði allt rétt. Ragnar lýkur greininni á þessum orðum:Vöndum okkur, krakkar.Þetta mál er ömurlegt. Ég hef orðið fyrir ranglátri meðferð. Alvarlegur veikleiki hefur afhjúpast. Hann er angi á öðru og stærra máli. Við kennarar erum varnarlausir. Fólk kemst upp með að níðast á okkur. En alveg eins og skólinn á að vera börnum skjól gegn vondu fólki þá verður hann að veita okkur kennurum slíkt skjól. Sérstaklega þegar okkur er ætlað erfitt og á tíðum átakasamt hlutverk.Þetta mál hlýtur að enda vel. Ég trúi ekki öðru. Ranglætið er svo augljóst. Það er svo augljóslega eitthvað að. Ég mun ekki gefa mig fyrir en það sem er bilað verður lagað. Ég fer í bili í önnur verkefni. Önnur verkefni sem skipta líka máli.Mér þykir vænt um stuðninginn. Mér þykir vænt um kveðjurnar. En vöndum okkur. Heift er ekki rétt svar við ranglæti. Heift er ekki rétt svar við neinu.
Mest lesið Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Innlent Segja boltann hjá stjórnvöldum Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Innlent Fleiri fréttir Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Sjá meira