Lífið

Púrtvín og ostar í hádeginu

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Sigurlaug er mikið afmælisbarn.
Sigurlaug er mikið afmælisbarn. Fréttablaðið/Daníel
„Þetta eru mikil gleðitíðindi. Mér finnst æðislegt að eiga afmæli og hlakka alltaf voðalega mikið til,“ segir dagskrárgerðarkonan Sigurlaug Margrét Jónasdóttir. Hún fagnar fimmtugsafmæli sínu í dag og ætlar að njóta dagsins í faðmi samstarfsmanna og fjölskyldu.

„Ég ætla að byrja á því að vakna og fara í vinnuna. Ég er með þátt á Rás 1 á hverjum morgni sem heitir Segðu mér og ég ætla að fá Margréti Eir söngkonu í heimsókn til mín. Svo ætla ég að njóta þess að finna tilfinninguna þegar maður á afmæli. Um kvöldið ætla ég að fara út að borða og á laugardaginn held ég veislu fyrir fjölskylduna. Ég ætla ekki að halda stórafmæli en ég er byrjuð að undirbúa laugardagsmatinn þar sem ég býð meðal annars upp á hreindýrahakk og annan góðan mat.“

Hún býst við því að fá margar kveðjur enda er hún dugleg að láta fólk vita hvenær hún á afmæli.

„Mér finnst hrikalega gaman þegar fólk man eftir afmælisdeginum mínum en ég er líka dugleg að minna fólk á hvenær ég eigi afmæli í óspurðum fréttum. Við pössum upp á það á Rás 1 að halda alltaf upp á það þegar einhver á afmæli. Ég ætla að gefa samstarfsfélögum mínum púrtvín og osta í hádeginu og ég stóla á að þeir syngi fyrir mig,“ segir Sigurlaug létt í bragði. Hún ætlar ekki að líta neitt sérstaklega yfir farinn veg á þessum merkisdegi enda mjög hamingjusöm í núinu.

„Ég var að rifja það upp þegar mamma varð fimmtug. Þá hugsaði ég: „Aumingja konan, hún er orðin svo gömul.“ Því er frekar fyndið að ég sé komin á þennan stað. Ég veit ekki hvort börnin mín vorkenni mér en sem betur fer er aldurinn afstæður. Ég er í vinnu sem ég elska, á heilbrigð og yndisleg börn og búin að eignast barnabarn sem ég er mjög upptekin af. Svo er ég orðin leiðsögumaður í ferðum til Rómar með ferðaskrifstofunni Vita. Þetta eru sérstakar kampavíns- og kaloríuferðir sem eru mjög skemmtilegar.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.