Nánast útilokað að álver rísi í Helguvík á þessu kjörtímabili Jakob Bjarnar skrifar 27. ágúst 2013 13:13 Ketill Sigurjónsson leggur fram kolsvarta greiningu á stöðu áliðnaðarins í nýrri grein.
Ketill Sigurjónsson, sérfræðingur á sviði orkumála, leggur fram kolsvarta greiningu á stöðu áliðnaðar í nýrri grein. Hann telur afar ólíklegt að hér rísi nýtt álver á næstunni, frekar að eitt þeirra muni hætta starfsemi. Fyrirsögn greinar Ketils, sem birtist á bloggsíðu hans, er "Hvaða álver lokar fyrst?". Hún segir sína söguna um efni greinarinnar. Hann telur þá stjórnmálamenn sem tala um nýtt álver ekki í mikilli snertingu við raunveruleikann, ál snarféll í verði árið 2008 í kjölfar fjármálakreppu og við tók offramleiðsla, miklar umframbirgðir hafa safnast upp og ólíklegt því að verð hækki eins og önnur hrávara, svo sem olía og járngrýti hafa gert. „Efni þessarar greinar gengur fyrst og fremst út á að menn hafi í huga að ekki er sjálfgefið að álverð verði hátt næstu tíu ár eða svo. Ekkert er hægt að fullyrða um þetta. En, þeir sem skoða þetta mest og hafa verið að skrifa um þetta að undanförnu eru svartsýnir á að álverð komi til með að hækka á næstu árum og jafnvel næsta áratug.“ Pétur Blöndal framkvæmdastjóri Samáls, Samtaka álframleiðenda, sagði í samtali við RÚV í morgun að langtímahorfur væru góðar en Ketill spyr á móti hvað hann eigi við? Verður álverð orðið hærra eftir fjögur ár, tíu ár eða tuttugu? Þetta sé óljóst hjá Pétri. Ketill ætlar að fjalla meira um ástandið á álmörkuðum á næstunni og mun þá leitast við að svara þeirri spurningu hvaða álver á Íslandi muni hugsanlega hætta starfsemi. Hann segir í hæsta máta ólíklegt að hér rísi nýtt álver á næstunni. „Mér þykir það mjög – mjög ólíklegt að hér rísi álver á næstu árum. Ég er þá fyrst og fremst að vísa til þessa kjörtímabils því það var talsvert um þetta talað í aðdraganda kosninga. Ég tel nánast útilokað að framkvæmdir fari á fullt í Helguvík á þessu kjörtímabili. Hvað gerist síðar? Það er auðvitað miklu erfiðara að spá um það.“
Mest lesið Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Erlent Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Erlent „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fleiri fréttir Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Sjá meira