Geislafræðingar krefjast skýringa Haraldur Guðmundsson. skrifar 27. ágúst 2013 15:25 Frá fundi geislafræðinga fyrr í mánuðinum.
Geislafræðingar ákváðu á fjölmennum fundi í gærkvöldi að senda frá sér yfirlýsingu til stuðnings formanni Félags geislafræðinga. Í yfirlýsingunni kemur fram að mikil óánægja sé meðal geislafræðinga með að ekki sé enn búið að ráða formann félagsins á Röntgendeild Landspítalans, þrátt fyrir undirmönnun geislafræðinga á deildinni. Formanni geislafræðinga var sagt upp störfum án áminningar í maí síðastliðnum og hafa geislafræðingar ítrekað lýst undrun sinni í fjölmiðlum á því að stjórnendur Landspítalans hafi ekki endurráðið viðkomandi.Yfirlýsing geislafræðinga:„Á fjölmennum fundi geislafræðinga kom fram megn óánægja með að enn sé ekki búið að ráða formann Félags geislafræðinga á Röntgendeild Landspítalans. Undirmönnun geislafræðinga á Röntgendeild Landspítalans hefur verið staðreynd í langan tíma og hefur það valdið miklu álagi á starfandi geislafræðinga. Þrátt fyrir þetta var formanni Félags geislafræðinga sagt upp störfum án áminningar, á sama tíma og verið var að auglýsa laust starf geislafræðings. Formaður Félags geislafræðinga sendi inn starfsumsókn og fór í viðtal þar sem henni var tilkynnt að ekki væri laus staða á Röntgendeild Landspítalans. Þetta vekur mikla undrun sérstaklega eftir ummæli Páls Matthíassonar, staðgengils forstjóra Landspítalans, í fréttum Stöðvar 2 þann 7. ágúst 2013;„Hins vegar verður umsóknum frá geislafræðingum tekið fegins hendi og þær fá flýtimeðferð. Að sjálfsögðu mun umsókn frá Katrínu, sem er reyndur og öflugur geislafræðingur, fá sömu afgreiðslu,“ segir Páll.Það skýtur skökku við að ekki sé hægt að ráða eins reyndan geislafræðing til starfa og Formaður geislafræðinga er, á sama tíma og verið er að skikka geislafræðinga á vaktir sem illa gengur að manna sökum manneklu. Við teljum að brotið hafi verið gróflega á formanni Félags geislafræðinga sem á að baki 33 ára farsælan starfsaldur við Landspítalann. Í ljósi alls þessa krefjumst við skýringa á þessari ákvörðun.“
Mest lesið Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Erlent Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Erlent „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fleiri fréttir Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Sjá meira