Páll Óskar treystir á að Sigmundur Davíð bjargi NASA Boði Logason skrifar 30. maí 2013 14:44 Það vill svo til að Sigmundur nokkur Davíð er í forsvari þar, og hann er sérstakur áhugamaður um verndun gamallra húsa í miðbænum og íslenskra minja, þjóðararfsins eins og hann kallar það. Mynd/365 "
Ég held í vonina og ég ætla ekki að gefast upp," segir poppkóngurinn Páll Óskar Hjálmtýsson sem berst enn fyrir því að skemmtistaðurinn NASA við Austurvöll verði ekki lagður niður í þeirri mynd sem hann var í áður. Hann segir forvitnilegt að sjá hvort að forsætisráðherra muni beita sér í málinu enda hafi hann lengi talað fyrir því að vernda gömul hús. Rúmlega tvö hundruð tónlistarmenn og hljómsveitir hafa skrifað undir yfirlýsingu þar sem mótmælt er áformunum um breytingar á svæðinu, þar sem meðal annars er gert ráð fyrir að NASA verði ekki lengur skemmtistaður. Þá er skorað á kjörna fulltrúa í borgarstjórn að endurskoða þá tillögu sem liggur fyrir að deiliskipulagi og leggja sitt að mörkum til að Nasasalurinn fái að standa í upprunalegri mynd og nýtast á sama hátt og verið hefur. Páll Óskar segir að ný staða sé komin upp í málinu, nú þegar að ríkisstjórn Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar tók við völdum. „Það vill svo til að Sigmundur nokkur Davíð er í forsvari þar, og hann er sérstakur áhugamaður um verndun gamallra húsa í miðbænum og íslenskra minja, þjóðararfsins eins og hann kallar það. Hann er búinn að ganga það langt að allar ákvarðanir um gömul hús í Reykjavík fara ekki lengur í gegnum menntamálaráðherra, heldur í gegnum hann persónulega,“ segir hann. „Þetta er persónulegt áhugamál hjá honum. Nú verður forvitnilegt að sjá hvort að Sigmundur Davíð sé trúr sinni sannfæringu eða hvort hann láti hagsmuni sinna flokksbræðra ráða,“ segir Páll Óskar. Og bendir á að Pétur Þór Sigurðsson, eigandi NASA, sé í Framsóknarflokknum og eiginmaður Jónínu Bjartmarz, fyrrverandi þingmanni Framsóknarflokksins. „Þetta er mjög spennandi staða,“ segir hann. Þann 8. júlí næstkomandi verður haldinn fundur á Ingólfstorgi og á Austurvelli, en Páll Óskar segir það verða stóra útitónleika. „Við eigum enn eftir að staðfesta listamennina sem koma þar fram. En við ætlum að sýna með málbandi að það séu 50 metrar á milli hótelsins og Alþingishússins. Það er Evrópumet, hvergi í Evrópu er nálægðin svona mikil á milli þjóðþings og hótels,“ segir Páll Óskar.Hér má sjá bloggfærslu Sigmundar Davíðs um skipulagsbreytingar á svæðinu.
Mest lesið Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Ekki rétt sem Halla segir Innlent Fleiri fréttir Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól Sjá meira