Innlent

Lýður sektaður

Þorgils Jónsson skrifar
Lýður Guðmundsson og verjandi hans Gestur Jónsson (til hægri)
Lýður Guðmundsson og verjandi hans Gestur Jónsson (til hægri) Mynd/ Stefán Karlsson

Lýður Guðmundsson, fyrrverandi stjórnarformaður Exista, var í hérðasdómi Reykjavíkur í dag fundinn sekur um brot á hlutafélagalögum vegna hlutafjáraukningar í félaginu í desember 2008. Lýður og Bjarnfreður Ólafsson hæstaréttarlögmaður voru hins vegar sýknaðir af ákæru um að hafa villt um fyrir Fyrirtækjaskrá.

Sektardómurinn kveður á um að Lýður greiði tveggja milljóna króna sekt, en saksóknari hafði krafist átján mánaða fangelsis. Málið snýst um hlutafjáraukningu í Exista upp á fimmtíu milljarða króna að nafnvirði, en fyrir þann hlut greiddi BBR ehf., félag í eigu Lýðs og Ágústs bróður hans sem voru stærstu eigendur Exista, andvirði eins milljarðs króna í hluta í undirfélagi BBR að nafni Kvakkur. Sagði saksóknari við aðalmeðferð málsins að eini tilgangurinn með þessari fléttu hafi verið að tryggja bræðrunum, sem oftast eru kenndir við Bakkavör, áframhaldandi yfirráð yfir félaginu, en Nýja Kaupþing hafði áður opinberað áform um að taka félagið yfir.

Dómurinn kemst að þeirri niðurstöðu að Lýður hafi, sem stjórnarformaður BBR, brotið vísvitandi gegn ákvæðum hlutafjárlaga með því að greiða Exista minna en nafnverð fyrir hlutinn.

Í seinni ákæruliðnum, þar sem Lýði og Bjarnfreði Ólafssyni var gefið að sök að hafa skýrt vísvitandi rangt og villandi frá sölunni með tilkynningu til fyrirtækjaskrár, voru þeir báðir sýknaðir. Ekki er talið sannað að Lýður hafi komið að tilkynningunni. Bjarnfreður bar fyrir dómi að hann hafi haft efasemdir um að kaupin stæðust en tilkynningin hafi verið rétt, þar sem stjórn Exista hafi samþykkt gjörninginn. Dómurinn tekur undir það sjónarmið og segir tilkynninguna, ásamt meðfylgjandi skýrslu endurskoðenda, hafa skýrt rétt frá kaupunum.

Gestur Jónsson verjandi Lýðs vildi ekki tjá sig um dóminn, en svaraði því til að ekki hafi verið ákveðið hvort dómnum yrði áfrýjað. Þorsteinn Einarsson, verjandi Bjarnfreðs, fagnar niðurstöðunni sem er afdráttarlaus og skýr að hans mati.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×