Saltvinnsla fyrir sælkera að hefjast á Reykhólum Kristján Már Unnarsson skrifar 30. maí 2013 19:00
Saltverksmiðja rís nú á Reykhólum og er áformað að hún hefji rekstur eftir mánuð. Ætlunin er að framleiða flögusalt fyrir matgæðinga undir heitinu Norðursalt. 540 fermetra verksmiðjuhús er risið við höfnina á Reykhólum og þar er allt á útopnu þessa dagana. Tuttugu manns vinna við að gera allt klárt, ganga frá húsinu, koma fyrir vélbúnaði og tengja raflagnir og vatnslagnir. Þetta er afkvæmi tveggja ungra manna, Íslendings og Dana, Sörens Rosenkilde og Garðars Stefánssonar. Þeir kynntust í háskólanámi í Árósum og ákváðu að skella sér saman út í ævintýrið. „Hérna erum við bara að búa til vonandi fínustu saltverksmiðju í heiminum. Þetta er nýi draumurinn okkar, sem er að búa til flottasta íslenskt sjávarsalt," segir Sören á ágætri íslensku í viðtali í fréttum Stöðvar 2. Aðferðin virkar sáraeinföld. Sjó verður dælt upp úr Breiðafirði og hann eimaður með íslenskum jarðhita þannig að saltið situr eftir. „Það má segja að þetta sé mikil ævintýramennska og óbilandi trú á hugmyndina á íslenskar náttúruafurðir. Það er það sem við erum að veðja á og trúum virkilega á," segir Garðar. Saltvinnslan nýtir sér sambýlið við Þörungavinnsluna og fær frá henni heitt affallsvatn en fær einnig heitara vatn beint frá borholu. Þeir ætla að framleiða svokallað flögusalt og er stefnt að því að 95 prósent fari á erlendan markað fyrir sælkera. Fyrirmyndin er breska Maldon-saltið en þeir segjast stefna að því að gera ennþá betra salt. Félagaranir stefna að því að framleiðslan hefjist um mánaðamótin júní-júlí og er áætlað að þarna verði tveir til þrír starfsmenn.
Mest lesið Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Ekki rétt sem Halla segir Innlent Fleiri fréttir Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól Sjá meira