Innlent

Nýir þingmenn á skólabekk

Hjörtur Hjartarson skrifar

Tuttugu og sjö nýir þingmenn settust á skólabekk í dag þar sem þeir voru kynntir fyrir því hvernig hlutirnir ganga fyrir sig á Alþingi. Farið var yfir framkoma, hefðir og venjur. Hjörtur Hjartarson brá sér niður á Austurvöll í dag og komst meðal annars að því að gallabuxur eru ekki vel séðar á hinu háttvirta Alþingi.

Helgi Bernódusson, skrifstofustjóri Alþingis brá sér í hlutverk skólastjóra í dag og hófst kennslan stundvíslega klukkan hálftíu í morgun. Rétt eins og fyrir fjórum árum eru margir nýliðar sem innan tíðar hefja störf á nýjum vinnustað eða 27.

Blaðamaður:

"Var eitthvað sagt hvernig herramenn og dömur eiga að klæða sig í þingsal?"

Frosti Sigurjónsson:

"Það var komið mjög stuttlega inn á það. Það eru ekki mjög strangar reglur um dömurnar, þær eru yfirleitt mjög snyrtilegar. En það þótti tilefni til þess að áminna karlmenn um að vera ekki í gallabuxum. Ég spurði hann nú að því, þegar við vorum í kaffinu, hvernig gallabuxur væru skilgreindar. Hvort það væru bláar denim buxur með gulum saumi. Við skemmtum okkur við að ræða þetta."

Blm: "Fékkstu einhvern botn í málið?"

Frosti:

"Nei"

Það er ekki algengt að nýliðar á þingi séu jafnframt verðandi ráðherrar en gerist þó endrum og eins. Hanna Birna Kristjánsdóttir er sest í stól innanríkisráðherra en hefur engu að síður enga reynslu sem þingmaður.

Hanna Birna Kristjánsdóttir:

"Já, það eru nú reyndar nokkur dæmi um það, síðast var Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra sem hérna inn í fyrsta skipti var ráðherra strax. Það er það sem ég er að upplifa núna. Mér fannst það mjög mikilvægt að fá að vera hér í dag með nýjum þingmönnum. Eins gott að að hafa þetta allt á hreinu fyrir framhaldið."

Óttar Proppe er á meðal hárprúðustu þingmanna Alþingis í dag, kannski frá upphafi.

Óttar Proppé:

"Ja, nú er ég ekki alveg með þetta á tæru. Mér skilst að starfsmenn þingsins séu eitthvað að reyna að reikna þetta út og skoða gamlar myndir. Það gætu hafa verið síðhærðir þingmenn hérna fyrr á árum. En ég hef á tilfinningunni að ég sé sköllóttasti, síðhærði þingmaðurinn, ég vona það allavega. Manns verður þá kannski minnst fyrir eitthvað."

Og eins og gengur, flytja sumir inn á meðan aðrir flytja út.

"En það eru ekki bara þingmennirnir nýju sem þurfa að kynnast Alþingi. Starfsfólk Alþingis þarf líka að kynnast þingmönnunum nýju. Til þess að auðvelda þeim starfið hefur verið útbúið pappaspjald þar sem fyrir kemur mynd og nöfn allra þingmannanna 27."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×