Spurningamerki sett við það að fara afsíðis með konunum Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar 16. ágúst 2013 18:26 Jón Gnarr, borgarstjóri, skálar fyrir nýjung í menningarlífi Reykjavíkur ásamt konu sinni, Jóhönnu Jóhannsdóttur, og Guðrúnu Jónsdóttur. Myndir/Stefán „
Opnunin gekk vonum framar og hér var bara fullt út úr dyrum,“ sagði Guðrún Jónsdóttir, talskona Stígamóta, í samtali við Vísi. Hún segir þó fólk almennt ekki hafa viljað fara afsíðis með konunum sem það keypti. Nýr kampavínsklúbbur var opnaður í gær í Reykjavík en klúbburinn er á vegum Stígamóta. Margmenni var í opnunarteitinu en þar var fólki boðið upp á að kaupa tíu mínútna einkaskemmtiatriði fyrir tuttugu þúsund krónur og fá frítt kampavín á meðan á atriðunum stóð. „Við fundum fyrir gífurlega miklum áhuga og stuðningi við starfið okkar,“ segir Guðrún. „Fólk hafði mikinn áhuga á því að kynnast þessum föngulegu konum sem við vorum að selja aðgang að.“ Hún segir marga hafa viljað styrkja starfið en að fólk hafi velt því fyrir sér af hverju það þurfti að fara afsíðis með konunum. „Fólki þótti það undarlegt. Það var sett spurningamerki við þann lið dagskrárinnar. Það verðum við að skoða í framtíðinni,“ segir Guðrún. En til þess að heyra sögur Stígamóta og fræðast um starfið þá var það nauðsynlegt. „Það var gaman að taka á móti öllu þessu fólki. Það komu þingmenn, borgarstjórinn og borgarfulltrúar en sérstaklega mikilvægt er að kynna fyrir þessu fólki hvað við erum að gera.“ Ekki er ljóst hver innkoman af atburðinum var. „Nú þurfum við að setjast niður og fara yfir hvort þetta sé rétta leiðin,“ segir hún aðspurð að því hvort að til standi að opna Kampavínsklúbba Stígamóta á nýjan leik. Fréttastofa var að sjálfsögðu á staðnum og myndir má sjá í safninu hér að ofan.
Mest lesið Gjörsamlega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu Innlent Ákærð fyrir manndráp: Á að hafa brugðið snöru um háls dótturinnar Innlent „Ásdís, stattu með samgöngusáttmálanum!“ Innlent Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Innlent Sjálfstæðisflokkur eykur forskotið á Samfylkingu í Reykjavík Innlent Spurningunni verði breytt og svarið einfalt „Já“ eða „Nei“ Innlent Ákærður fyrir að veiða minka Innlent Fjórar „brúðir ISIS“ snúa aftur til Ástralíu Erlent Mikil tíðindi í nýrri Maskínu-könnun og fjölda afbrotamanna vísað úr landi Innlent Ted Turner er látinn Erlent Fleiri fréttir „Við erum bara komin aftur í Icesave-tímann“ Sjálfstæðisflokkur eykur forskotið á Samfylkingu í Reykjavík Gögn íslenskra nemenda mögulega í höndum netþrjóta Mikil tíðindi í nýrri Maskínu-könnun og fjölda afbrotamanna vísað úr landi Ákærð fyrir manndráp: Á að hafa brugðið snöru um háls dótturinnar Þóra og Ríkisútvarpið sýknuð af kröfum Páls skipstjóra Gera athugasemdir við að borgarbúar kjósi í Kópavogi Gjörsamlega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu „Það má ekki eyða peningum sem Alþingi hefur ekki úthlutað“ „Ásdís, stattu með samgöngusáttmálanum!“ Breytt verklag útskýri hærri tölur í áhættumati Ákærður fyrir að veiða minka Eldur í mannlausri rútu í Laugardal Spurningunni verði breytt og svarið einfalt „Já“ eða „Nei“ Örlítið fleiri fæðingar en frjósemin stendur í stað Ein minniháttar líkamsárás á annars rólegri vakt lögreglu Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Hættum að vera þjóð ef við höldum ekki upp á íslenskuna Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Kona á sjötugsaldri lenti á sjúkrahúsi með 125 pakkningar innvortis Vill fjölga börnum sem eru eingöngu á brjósti til sex mánaða Burðardýr í bráðaaðgerð og hindranir í samstarfi Gögnum nemenda mögulega stolið af Canvas Mælti sér mót við barn og réðst á það Talstöðinni í Kópavogi lokað: Enginn talmeinafræðingur tilbúinn til að taka við rekstrinum Ný könnun í Kópavogi: Meirihlutinn heldur en Samfylking á siglingu Sættir sig ekki við niðurstöðu klofins Mannréttindadómstóls Hátt í hundrað heimili hugsanlega yfir tekjumörkum hjá Félagsbústöðum Sjá meira