Dæla hákarlaís, tannkremsís og doritos ís ofan í gesti Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar 16. ágúst 2013 22:19 Ísdagurinn í fyrra var vel heppnaður og enginn fór íssvangur heim
Ýmis ólíkindabrögð verða á boðstólum á Ísdeginum í Hveragerði sem haldinn verður hátíðlegur í sjöunda sinn á morgun. Munu gestir fá eins mikinn ís og þeir geta í sig látið. Í fyrra lét enginn segja sér það tvisvar og fóru tvö tonn af ís ofan í mannskapinn sem taldi 14 þúsund gesti. Dagurinn er orðinn árlegur viðburður Kjöríss, haldinn í samstarfi við bæjarhátíðina Blómstrandi daga. Á árlega ísdeginum er lögð sérstök ísleiðsla úr verksmiðju Kjöríss og út á bílaplan. Þar er ísnum svo dælt linnulaust og er það tryggt að ísþyrstir gestir fái nægju sína. Starfsmenn Kjöríss líta á Ísdaginn sem einskonar uppskeruhátíð eftir háannatíma ísframleiðslunnar, sumarið, og er allri þjóðinni boðið á hátíðina. Brögðin sem í boði verða eru ekki af venjulegri endanum. Þar má sem dæmi nefna: tannkremsís, hákarlaís, hundasúruís, álfa ís, doritos ís og svo mætti lengi telja. Gestir Ísdagsins gerast að auki sérlegir íssmakkarar Kjöríss og geta haft áhrif á framleiðsluþróun fyrirtækisins með því að gefa ísunum einkunn. Skemmtidagskrá verður í Hveragerði á morgun því auk ísáts mun Ingó Veðurguð skemmta lýðnum, Skrímslin verða á ferðinni og Hjalti Úrsus verður með kraftakeppni fyrir kraftakrakka.
Mest lesið Úlfar hættir sem lögreglustjóri Innlent Breyttar forsendur og pólitískar áherslur á bak við ákvörðunina Innlent Sjö ára fangelsi fyrir tvær tilraunir til manndráps Innlent Telur víst að gögnin hafi komið frá sérstökum sjálfum Innlent Dr. Bjarni er látinn Innlent Geyma fjöldann allan af fullum bensínkútum í bíl í Hlíðunum Innlent Rannsóknarleyfi Rastar hafnað Innlent „Þetta var ekki rétt, alveg klárlega“ Innlent Þakkantinum var haldið saman með kústskafti Innlent Lýsa martraðakenndri leigubílaferð upp í Bláfjöll Innlent Fleiri fréttir Fá engar bætur fyrir stolin bíl „Þetta er mikil áskorun en á sama tíma tek ég henni bara vel“ Syndir 1.600 kílómetra í kringum landið: Borðar tíu þúsund kalóríur á dag fyrir svaðilförina Ekkert fundist af báti sem sagður er hafa hvolft Gjörunnin matvæli tæpur helmingur af orkuinntöku landsmanna Tilkynnti um stolið hjól og réðst svo á þjófinn „Þetta var ekki rétt, alveg klárlega“ Máttu skikka nemanda í tvö sjúkrapróf samdægurs Njósnari sér að sér og synt í kring um Ísland Vill deila þekkingu á jarðvarma með Úkraínu Bað forseta að taka „stjórnarliða á skólabekk og tukta þá til“ Sjö ára fangelsi fyrir tvær tilraunir til manndráps Blindir vilja Hljóðbókasafnið heim Stjórnarandstaða kvartar undan starfi í velferðarnefnd Breyttar forsendur og pólitískar áherslur á bak við ákvörðunina Úlfar hættir sem lögreglustjóri Ráðherra hafnaði loftslagsrannsókn vegna ófullnægjandi lagaramma Hafnar því alfarið að hafa lekið gögnunum Nú má heita Gúníta Ljósynja Dawn Fólk varað við aukinni hættu á gróðureld Sala á Íslandsbankabréfum hafin og Jón Óttar sakar Ólaf Þór um leka Rannsóknarleyfi Rastar hafnað Telur víst að gögnin hafi komið frá sérstökum sjálfum Miðhúsabraut lokuð eftir að ekið var á vegfaranda á hlaupahjóli Yfir þrjú hunduð eftirskjálftar Mál Oscars sé barnaverndarmál en ekki útlendingamál Bein útsending: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Vara við aukinni hættu á gróðureldum á Austurlandi Stór skjálfti rétt hjá Grímsey Þakkantinum var haldið saman með kústskafti Sjá meira