Heimanámið á heima í skólanum Svavar Hávarðsson skrifar 5. desember 2013 07:00 Yngstu börnin þurfa að glíma við of flókin verkefni á fyrstu árum skólagöngu sinnar. Þau eiga að ljúka skóladeginum í skólanum, en ekki heima að kvöldlagi. Mynd/Stefán
Það verður að gera grunnskólanám markvissara og nýta skólatímann til að þjálfa börn í þeim grunnþáttum náms sem eru þeim mikilvægastir – lestri og stærðfræði. Allt sem til þarf er vilji ráðamanna og ekki síður skólafólks um að breyta skipulagi skóladagsins fyrstu ár skólagöngunnar. Nemendurnir eiga að vera miðpunktur skólastarfsins og það á að taka mið af þörfum þeirra. Á þessu er misbrestur í íslensku skólakerfi. Þetta segir Hermundur Sigmundsson, prófessor í lífeðlislegri sálarfræði við Háskólann í Þrándheimi. Hann hefur um árabil unnið að rannsóknum á færniþróun og skipulagi skólastarfs og kynnt hugmyndir sínar sem hafa fengið góðan hljómgrunn, meðal annars í Noregi. Eins og alþjóð veit voru niðurstöður úr PISA-rannsókn OECD fyrir árið 2012 kynntar á þriðjudag. Niðurstaðan er mikið áhyggjuefni fyrir íslenskt samfélag; 30% 15 ára pilta lesa sér ekki til gagns og staða krakkanna á landsbyggðinni er í frjálsu falli víðast hvar. Í heild versnar frammistaða íslenskra nemenda mikið þegar litið er aftur um áratug.Hermundur SigmundssonHeimanámið í skólann „Það er ekki sami tími til að fylgja börnum eftir heima eins og áður var. Það eru auk þess spennandi verkefni sem glepja börnin og krefjast tíma, og á ég þá við tölvuna og alla þá möguleika sem henni fylgja. Mér varð líka hugsað til kreppunnar þegar ég sá þessi gröf, og hún hefur sennilega kostað sitt varðandi námið,“ segir Hermundur. Hermundur spyr hvort verið sé að nota réttar kennsluaðferðir, þær sem alþjóðlegar rannsóknir sannarlega sýna að virka betur en aðrar í lestrarkennslu. „Svo er þetta líka spurning um þjálfunina. Við vitum að 3-5% barna hafa lífeðlisfræðilega ástæðu fyrir lestrarerfiðleikum. En ef á 30% hópsins lesa sér ekki til gagns á sama tíma, þá má fullyrða að 25 til 27% þeirra hafi ekki fengið nægilega þjálfun. Það er það sem við verðum að bæta og fjölmargir krakkar fá hana ekki heima hjá sér, af ýmsum ástæðum. Getum við haft skólakerfið þannig að við forgangsröðum með þeim hætti fyrstu 4-5 skólaárin, að allir nái tökum á lestri?“ spyr Hermundur og bætir við að þjálfunin eigi að fara fram á skólatíma undir handleiðslu kennara sem getur metið hvar skórinn kreppir hjá hverjum og einum nemanda – og hann efast ekki um að kennararnir valdi starfi sínu. Þeim sé hins vegar gert að dreifa kröftunum um of – og þar sé gallaðri námsskrá um að kenna. „Þjálfunin á að vera í skólanum en ekki heima. Verkefnin eru allt of flókin og álagið of mikið á kennarann, þess vegna. Krakkarnir eiga að læra alls konar hluti mjög snemma í stað þess að leggja áherslu á það sem skiptir máli – að lesa, skrifa og reikna sem er mikilvægast þangað til þau verða 10 ára gömul. Þá eru þau tilbúin til að kynna sér allt hitt – enda ráða þau þá við lestur sem er grundvöllur alls annars náms.“ Fókusinn á börnin! Hermundur segir það misskilning að málið sé flókið. „Það verður að taka á vandanum með sameiginlegum aðgerðum og frumkvæðið á að koma frá menntamálaráðherra. Þá má bæta við að lengri skóladagur er engin lausn, og það er lengra nám kennara ekki heldur. Við þurfum styttri skóladag og meiri fókus. Börn þurfa líka að fá að hreyfa sig – að fá útrás. Rannsóknir sýna svart á hvítu að hreyfing í byrjun skóladags skapar ró næstu fjóra tíma á eftir fyrir þá sem eru virkastir, svo dæmi sé tekið.“ Það er skoðun Hermundar að nemendurnir eigi að vera miðpunktur skólastarfsins og það á að taka mið af þörfum þeirra. Á þessu sé misbrestur í íslensku skólakerfi. „Við látum börnin sitja í á annan klukkutíma án þess að hreyfa sig. Fullorðið fólk getur þetta ekki hvað þá sex eða sjö ára gamalt barn. Það sama á við um opin rými. Vinnandi fólki hentar þetta illa sem kemur fram í veikindum og fleiru. Opin rými eru ekki góð fyrir börn sem eiga við vanda að stríða, t.d. varðandi einbeitingu og ofvirkni. Svo eru sífellt fleiri skólar byggðir án þess að taka tillit til þessa. Við verðum að hanna skólana, jafnt sem skólastarfið, með tilliti til þess sem hentar börnum, en ekki þeim fullorðnu eins og nú er. Við setjum fókus á börnin og unglinganna. Við getum ekki – og megum ekki hafa einhvern annan fókus en það.“ Skóli án aðgreiningar Á Íslandi starfa grunnskólar eftir hugmyndafræðinni um skóla án aðgreiningar. Hugmyndafræðin á að búa nemendur með sérþarfir betur undir frekari menntun og þátttöku í samfélaginu, fremur en þeir séu eingöngu að umgangast aðra sem glíma sem við sömu vandamál. „Það má skoða þessa stefnu og hvort hún sé að skila því sem að var stefnt. Það er erfitt að brjóta þetta upp vegna hagsmunatengsla. Margir foreldrar barna með sérþarfir biðja um að komast í sérskóla með sín börn, en hafa ekki möguleika á því. Því segi ég að við verðum að setja börnin og þarfir þeirra í forgang. Það er ekki erfitt að leysa þetta en það þarf vilja til,“ segir Hermundur að lokum.
Mest lesið Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Innlent Segja boltann hjá stjórnvöldum Innlent Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Innlent Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Innlent Fleiri fréttir Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Sjá meira