Um 20 byssum stolið á ári Hjörtur Hjartarson skrifar 5. desember 2013 19:30
Snorri Guðjónsson, lögreglufulltrúi hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu Yfir hundrað skotvopnum hefur verið stolið undanfarin fimm ár. Frágangi á byssum er oft á tíðum ábótavant sem gerir innbrotsþjófum auðvelt fyrir. Ekki er farið fram á að eigendur skotvopna geymi byssur sínar í sérstökum, læstum skáp nema við kaup á fjórðu byssunni. Reglugerðin fyrir útgáfu skotvopnaleyfis á Íslandi er áþekk því sem þekkist á hinum Norðurlöndunum. Ströng skilyrði eru sett áður en slík leyfi eru gefin. Ákveðinn aldur, andlegt heilbrigði, vottað af lækni og hreint sakavottorð. „Ég held nú að það sé ansi margt hjá okkur til hreinnar fyrirmyndar. Við stöndum ekki að baki því sem við þekkjum í kringum okkur. Til dæmis hvað varðar skráningu skotvopna,“ segir Snorri Guðjónsson, lögreglufulltrúi hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Samkvæmt upplýsingum frá Ríkislögreglustjóra var heildarfjöldi skotvopna hérlendis, 59.400. Rétt tæplega 19 þúsund manns höfðu skotvopnaleyfi. Í landsskrá skotvopna berast einnig tilkynningar um þjófnað á skotvopnum. Frá 2008 hefur um 20 skotvopnum verið stolið á ári, eða 107 alls. Ljóst má því vera að fjölmörg skotvopn eru í höndum óprúttinna aðila, mun fleiri en þessi 107. „Auðvitað hefur maður áhyggjur að svo sé,“ segir Snorri.Sigurður Ragnar Haraldsson, verslunarmaður hjá skotveiðiversluninni HlaðÍ lögum um meðferð skotvopna segir að ekki þurfi að geyma byssur í sérstökum byssuskáp fyrr en við fjórðu byssu. Reyndar liggur fyrir frumvarp hjá Alþingi sem kveður á um að sérstakan skotvopnakáp þurfi við kaup á fyrstu byssu. Í skotvopnalögum segir engu að síður að byssur og skotfæri skulu geymdar í aðskildum læstum hirslum. Eins og gefur að skilja hefur lögreglan ekki mannafla til að fylgja því eftir að allir standi við það. Reyndar er það bara svo að lögreglan heimsækir bara þá sem þurfa að vera með sérstakan byssuskáp, einu sinni. Menn geta vissulega keypt viðurkennda byssuskápa fyrir eina til þrjár byssur en lítið er hinsvegar um það. „Nei, það er svona mín tilfinning að flestir sem eru að kaupa sér viðurkenndan skáp geri það við fjórðu byssu, eins og lög gera ráð fyrir,“ segir Sigurður Ragnar Haraldsson hjá skotveiðiversluninni Hlað. Sigurður segir að hann margir geymi byssur sínar í skápum með lás sem nokkuð auðvelt er að brjóta upp. Sumir í ólæstum fataskáp og þá mun geymsla á skotvopnum undir hjónarúminu vera nokkuð vinsæl. „Já, ég held að það séu alveg pottþétt dæmi um að fólk geymi byssur sínar undir rúmum og inni í fataskápum.“ Almennt má þó segja að eigendur skotvopna á Íslandi séu ábyrgir og gangi vel frá byssum sínum þegar þær eru ekki í notkun.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Innlent Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fleiri fréttir Loka fyrir umferð vegna bilunar í umferðarljósum Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sjá meira