Innlent

Ríkið yfirtekur ekki skuldir Sunnuhlíðar

Jóhanna Margrét Einarsdóttir skrifar
 Stjórn Sunnuhlíðarsamtakanna hefur samið við ríkið um að það yfirtaki rekstur heimilis frá frá áramótum. Við yfirtökuna er lögð áhersla á að ekki verði röskun á þjónustu við íbúana eða stöðu starfsmanna.	Fréttablaðið/GVA
Stjórn Sunnuhlíðarsamtakanna hefur samið við ríkið um að það yfirtaki rekstur heimilis frá frá áramótum. Við yfirtökuna er lögð áhersla á að ekki verði röskun á þjónustu við íbúana eða stöðu starfsmanna. Fréttablaðið/GVA
 „Næsta skref verður að finna leiðir til að leysa skuldavandann. Sunnuhlíð á fasteignir sem duga fyrir skuldunum,“ segir Jóhann Árnason, framkvæmdastjóri Sunnuhlíðar.

Þar sem ríkið yfirtekur einungis reksturinn verða skuldirnar skildar eftir í gamla sjálfseignarfélaginu. Hjúkrunarheimilið skuldar lífeyrissjóðum og birgjum meðal annars vegna kaupa á mat og lyfjum um 260 milljónir króna.

Heilbrigðisráðherra og stjórn Sunnuhlíðarsamtakanna hafa náð samkomulagi um að ríkið yfirtaki rekstur hjúkrunarheimilisins í Sunnuhlíð frá og með næstu áramótum. Stjórn Sunnuhlíðar hefur óskað eftir því að velferðarráðuneytið komi að viðræðum um leiðir til að takast á við uppsafnaðar skuldir vegna rekstrar hjúkrunarheimilisins og hefur ráðuneytið fallist á það.

Ríkið ætlar ekki að reka Sunnuhlíð nema í skamman tíma og leitað verður að nýjum rekstraraðila til reka heimilið. Samkvæmt upplýsingum frá Kristjáni Þór Júlíussyni heilbrigðisráðherra verður það á ábyrgð þess sem tekur yfir reksturinn að ráða heimilinu nýjan framkvæmdastjóra.



Jóhann segir því að yfirtakan leysi ekki allan vanda en hún tryggi þeim sem búa í Sunnuhlíð áframhaldandi vist og starfsmönnum áframhaldandi vinnu.

Hjúkrunarheimilið Sunnuhlíð er sjálfseignarstofnun sem var sett á fót 1979 af níu klúbbum og félögum í Kópavogi en heimilið tók til starfa 1982. Í Sunnuhlíð eru 73 hjúkrunarrými og 18 dagdvalarrými.

Sunnuhlíðarsamtökin reka auk hjúkrunarheimilisins rúmlega 100 íbúðir fyrir aldraða. Rekstur íbúðanna er aðskilinn rekstri hjúkrunarheimilisins en íbúarnir hafa getað notið þjónustu á hjúkrunarheimilinu. Sú þjónusta verður áfram í boði eftir að ríkið tekur við rekstrinum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×