Tölvuþrjótur lokar leikskólasíðu Freyr Bjarnason skrifar 18. desember 2013 21:45 Krakkarnir í leikskólanum Aðalþingi í hádegismat. Vefsíða leikskólans liggur niðri. Fréttablaðið/Valli
Vefsíða leikskólans Aðalþings í Kópavogi, Adalthing.is, hefur legið niðri í um tíu daga vegna þess að tölvuþrjótur er búinn að hakka sig inn á hana. Guðrún Alda Harðardóttir, sem rekur leikskólann, heldur að þrjóturinn hafi talið að um vefsíðu Alþingis, Althingi.is, hafi verið að ræða. „Við veltum því fyrir okkur hvaða ástæðu einhver hafi til að hakka síðu einhvers lítils leikskóla á Íslandi,“ segir Guðrún Alda, aðspurð. „Það hafa verið árásir á síðuna áður en þeim hefur aldrei tekist að tæta hana niður fyrr en núna.“ Guðrún Alda segir árásina bagalega, leikskólakennarar og foreldrar finni verulega fyrir henni. „Við notum síðuna mikið sem upplýsingatæki. Þarna erum við með alls konar kannanir á meðal foreldra og upplýsingar. Margir hafa kvartað bæði innanlands og erlendis og bent okkur á að síðan liggi niðri.“ Að sögn Guðrúnar Öldu þykir mörgum erlendum gestum nafnið Aðalþing merkilegt en skólinn heitir eftir götunni þar sem hann stendur að Vatnsenda. „Við vinnum mikið með lýðræði og það er ekki leiðinlegra að heita svona fínu nafni.“ Engar deildir eru í skólanum heldur þing og yfirmenn þeirra kalla sig þingforseta.
Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Fleiri fréttir Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Sjá meira